Mætir í íþróttagallanum með ennisband í svaka stuði
Teningavarpið fer þannig fram að skapaður verður nýr þráður kl 08:00 að morgni sunnudags undir nafninu Keppnisgrein Teningavarp. Þar má hver keppandi yfir daginn varpa 6 teningum þrisvar sinnum, útkoma hvers kasts er plúsað saman og hæsta kastið gildir. Þetta eru semsagt þrjár tilraunir og má dreifa tilraununum yfir daginn þó keppandi megi auðvitað hespa þessu af ef hann er í tímaþröng.
Skokkar létt á staðnum
Ræskir sig
Ég lýsi hér með þessa fyrstu Baggalútíuleika Gestapós setta!
Varpar teningum
Úpps andskotinn. Gleymdi að kasta. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Jæja, fyrsta kastið mitt þá ógillt.
Sér 0 stig á stigatöflunni og reynir að bera sig mannalega
Jarminn er allra manna vaskastur og því fyrstur á svæðið (og já, ég var hérna á undan mótshaldara).
Varpar 6 kvekendöm fáránlega langt
16, gott kast Jarmi. Verst með ásana.
Opnar nýtt Gatorade
Best að klára þetta strax, því hér er farið að kvölda...
Annað andvarp...
Og lokaandvarp mitt hér...
Kanski maður taki þátt í þessu.
Ekki var það nú merkilegt.
Svo gleymir maður náttúrulega að kasta.
síðasta.
Teygir vel á og bíður eftir að það komi að sér í aðra umferð
Skilur ekkert í hvað lopinn er með margar innsláttarvillur
Þarf ég ekki að halda áfram?
...til að geta klárað?