Vjer berum hjer með fram formlega kvörtun vegna veðurs og veðurútlits í vissum landshlutum næstu daga. Náði það að hafa óæskileg áhrif á áður fyrirhuguð ferðalög og hernaðaráætlanir forsetaembættis Baggalútíu.
Kvörtun yðar hefur nú verið tekin til formlegrar afgreiðslu... Sýpur á Remy Martini XO og ropar Samkvæmt áræðanlegustu upplýsingum vorum, hefur veðurútlit fyrir alla landshluta Baggalútíska heimsveldisins verið aðlagað þeim íbúum sem þar búa. Slafrar í sig kavíar og þurrkar sér um munninn með kvörtunarbréfi forsetans Því er veðrið ávallt eins gott eins og íbúar þar eiga skilið. Gefur frá sér vellíðunarstunu meðan 3 bikinimódel skiptast á að nudda á honum tærnar Frekari kvartanir verða að berast með 14 daga fyrirvara og vera skrifaðar á löggiltam skeini... nei ég meina skjalapappír... í 7 riti. Leggst afvelta á mitt skrifborðið og fer að hrjóta.
Kemur inn á skrifstofuna með 3 baðfatamódel á eftir sér sem stjana í kringum hann á alla lund. Gengur að skrifborðinu og slekkur á almyndinni af Huxa sem situr við skrifborðið og sýnist vera niðursokkinn í vinnu. Jamm og jæja... Hér er greinilega allt eins og það á að vera og sjálfstýringin á veðurvjelininni virðist virka eins og best verður á kosið. Þessi hálfi dagur sem ég náði að vinna hérna á kontórnum virðist hafa skilað sér. Kíkir á tölvuskjáinn og sér að nokkur ný hita og sólskinsmet hafa verið sleginn í sumafríinu. Það er greinilegt að B Eving er að vinna vinnuna sína. Öll met samviskusamlega skráð og bókfærð. Sér að iðnaðarmennirnir hafa klárað að útbúa japönsku baðlaugina í garðskála skrifstofunnar. Smellir fingrum og samstundis hefjast baðfatamódelin handa við að afklæða hann og leiða til laugar...
TILKYNNING FRÁ VEÐURFARSSTOFNUN HINS BAGGALÚTÍSKA HEIMSVELDIS
Vegna endurnýjunar á kóbaltkjarnagreinisskilum og þrívetnisfláráði í Veðurvélinni verður því miður að lækka meðalhita á landinu næstu daga.
Meðal dagshiti verður sem hér segir:
Suðurland : 8°
Vesturland: 9°
Vestfirðir: 4°
Norðurland vestra: 6°
Norðurland eystra: 3°
Austurland 8°
Miðhálendið 0°
Breytingar þessar munu taka gilldi nú þegar og standa yfir a.m.k. næstu 3 daga.
VEÐURFARSSTOFNUN HINS BAGGALÚTÍSKA HEIMSVELDIS
Á þræði þessum er þvílíkt magn hávísindalegra innskota að apaheilinn ræður ekki við slíkt flóð upplýsinga.
Snýr við út af þræðinum, en fer í peysu til öryggis
TILKYNNING FRÁ VEÐURFARSSTOFNUN HINS BAGGALÚTÍSKA HEIMSVELDIS
Vegna endurnýjunar á kóbaltkjarnagreinisskilum og þrívetnisfláráði í Veðurvélinni verður því miður að lækka meðalhita á landinu næstu daga.
Hvernig í bleikmáluðum bavíönum stendur á því að ekki var búið að setja lög sem banna að svona nokkuð sje framkvæmt þegar vjer erum í sumarfríi ? Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer
Afleysingamaður að vinna sig í álit? Ef til vill geimvera sem hefur sloppið af svæði 69 í kjalllaranum?
Fer í síðar nærbrækur
TILKYNNING FRÁ VEÐURFARSSTOFNUN BAGGALÚTÍSKA HEIMSVELDISINS
Þar sem okkur barst, eftir krókaleiðum, http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?p=1002595#1002595 kvörtun vegna svokallaðs kuldakasts hefur verið gripið til viðeigandi ráðstafanna. Reiknað er með að hafa veðurvélina stilla á 4°C næstu daga.
Fýkur stundum í ykkur þarna á veðurfarsstofnuninni?
Fýkur stundum í ykkur þarna á veðurfarsstofnuninni?
Nei. Við vinnum innandyra. Það er þó huxanlegt að það hafi fokið í mig bútur úr páfuglsfjöður þegar að 5 baðfatamódel voru að keppast við að veifa blævængjum sínum mér til svölunar. En ég slapp lítt skaddaður frá þeirri raun.