Endurnýja skal nú skafla
skrifum hérna nýjan kafla.
Kveður við hljóð – er knúð á dyr.
„Hver er þarna?“ einhver spyr.
"Hleyp mér inn ég á svo bágt"
ansar lítil stúlka lágt.
„Ég er illa nærð og nakin,
nýlega af draumi vakin.“
Svarað var með þungum þjósti:
Þér hvað liggur nú á brjósti?
Ég er skrítin skemmtileg
í skammdeginu þung og treg.
[ATH: nokkrir hér fyrir ofan nota ekki íslenskar gæsalappir... það er bagalegt...]
Arka gang með troðna tösku
taðreykt ket og opna flösku
Giska mikinn mat ég ét
maula lakkrís og sælget
Dyrum upp í hasti hratt:
„Heyrðu, þetta er alveg satt!“