— GESTAPÓ —
Þúsundþula
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3, 4, 5
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 17/10/08 09:33

Endurnýja skal nú skafla
skrifum hérna nýjan kafla.

To live outside the law, you must be honest.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 17/10/08 10:04

Kveður við hljóð – er knúð á dyr.
„Hver er þarna?“ einhver spyr.

vér kvökum og þökkum
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Útvarpsstjóri 17/10/08 10:10

"Hleyp mér inn ég á svo bágt"
ansar lítil stúlka lágt.

Fjósamaður Heimsveldisins - Eigandi allra prófskírteina Herra Hafralóns - Fjölmiðlafulltrúi RBB
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 17/10/08 10:14

„Ég er illa nærð og nakin,
nýlega af draumi vakin.“

vér kvökum og þökkum
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 19/10/08 12:06

"Veðrið hefur hrakið mig,
hleyp mér inn að faðma þig"

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 19/10/08 15:32

Svarað var með þungum þjósti:
„Þér hvað liggur nú á brjósti?“

To live outside the law, you must be honest.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
20/10/08 10:09

"Ég er sár og ég er köld.
Ég á engan verndarskjöld."

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 20/10/08 10:40

„Ég er skrítin skemmtileg
í skammdeginu þung og treg.“

[ATH: nokkrir hér fyrir ofan nota ekki íslenskar gæsalappir... það er bagalegt...]

To live outside the law, you must be honest.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 20/10/08 11:20

Arka gang með troðna tösku
taðreykt ket og opna flösku

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 20/10/08 13:43

„Giska mikinn mat ég ét
maula lakkrís og sælget“

To live outside the law, you must be honest.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 20/10/08 14:18

Dyrum upp í hasti hratt:
„Heyrðu, þetta er alveg satt!“

vér kvökum og þökkum
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
lappi 5/11/08 17:13

Með glapa í augum horfði hún.
;;Hjákátleg með ygglibrún"

lappi
LOKAÐ
        1, 2, 3, 4, 5
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: