Annað hvort endar þetta á að vera samkvæmisleikur (og flyst þá á viðeigandi stað) eða deyr drottni sínum vegna hugmyndaleysis. Allavega, þá er af nógu að taka og hver á nefna einn hlut og af hverju
Til að þráðurinn verði ekki málþófsþráður þá eru settar takmarkanir um 4 línur pr. mótmæli. Séu einhverjir málóðari en svo að 4 línur dugi þá ber viðkomandi að smækka textann sinn í viðeigandi stærð
Og byrja svo:
... Vegasköttum.
Fyrst ekki fer nema brotabrotabrot af vegasköttum til vegagerðar og verkefna tangda vegum og samgöngum, þá ber okkur að mótmæla þessu opinbera okri harðlega! Reisir risastórt mótmælaspjald með gati í miðjunni
Ég mótmæli veggjakroti sem lýtir höfuðborgina og styð framtak Góðverkasamtakanna Betri bær.
Auglýsing
Vanur atvinnumótmælandi óskar eftir starfi við mótmæli. Styð hvaða málstað sem er gegn sanngjarnri greiðslu. Gegn aukagjaldi er hægt að útvega mótmælaspjöld, hlekki og handjárn, uppblásin dýr, (hvort sem þau eru í útrýmingarhættu eður ei), gerfiblóð, tíbeska munkakufla eða vörubíl með flautu.
A.v.á
Ég mótmæli því að helvítis íhaldið sé enn í stjórn.
Það á að mótmæla okri...
Mælir sér mót
Mælir með mótsögnum
Ég mótmæli háu eldsneytisverði. Parkerar rútunni þversum á næstu gatnamótum.
Ég vil hér með mótmæla áfengisgjöldum...
Vjer mótmælum því hjer með formlega að raunheimar skuli geta tekið tíma frá Gestapóinu.
Vjer mótmælum því hjer með formlega að raunheimar skuli geta tekið tíma frá Gestapóinu.
Lyftir upp mótmælaspjald með orðum forsetans
Ég er á móti því að mótmæla á móti þeim sem minna meiga sína og einnig er ég á móti því að við mótmælum því að við almúgin berum ekki ábyrgð á sukki bankanna. Auðvitað eigum við að borga brúsann, það hefur ávallt verið svo og mun verða um ókomna tíð. Hér áður var þrældómurinn augljósari á dögum þrælahaldsins.
Það sem hún sagði...
... held ég. Klórar sér ringlaður í höfuðstafnum
Ég er á móti því að mótmæla á móti þeim sem minna meiga sína og einnig er ég á móti því að við mótmælum því að við almúgin berum ekki ábyrgð á sukki bankanna. Auðvitað eigum við að borga brúsann, það hefur ávallt verið svo og mun verða um ókomna tíð. Hér áður var þrældómurinn augljósari á dögum þrælahaldsins.
Lifi ByltinginxT
Ég er á móti því að lénsherrar vorir, bankarnir, séu styggðir.
Stuðlar að lækkun krónunnar til að þóknast bönkunum
Það á að mótmæla mismunun af hálfu opinberra starfsmanna þegar þjóðkirkjuprestar neita að gifta samkynhneigða.