Mætti ég þá spyrja, á hvaða völl þú farir helst í reisum þessum?
Mætti ég þá spyrja, á hvaða völl þú farir helst í reisum þessum?
Portman Road að sjálfsögðu.
Auðvitað, hvernig spyr ég.
Þú bara skrifar spurninguna í svona innlegg, setur svona ? merki aftast og ýtir á senda.
Ekkert mál, jafnvel Hafnfirðingur gæti gert það.
slær Andþór í hnakkann
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Brosir upp að eyrum og skellir sér á lær til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega spaugilegt eins og kettinum
Frekar færi ég á formúlukeppni en á fótboltaleik.
Hoojjjaaaa! Heggur sjónvarpsfjarstýringuna úr höndum Nermals og tekur kollhnís útaf sviðinu
Ahhh, Pat Jennings, minn uppáhaldsmarkvörður. Það eina sem að ég átti í vandræðum með að samþykkja með hann var að hann skyldi spila fyrir Arsenal. Hann er golfkennari í dag, ætti að skella mér á námskeið.
Þá var nú Grobbelaar skemmtilegri. Hann var skemmtikraftur. Spilaði að vísu fyrir Liverpool, en enginn er fullkominn.
Skemmtilegri jú, það skal ég viðurkenna en aldrei betri.
Er virkilega ætlast til að vjer trúum því að það leynist ósannindi í texta háttvirtrar ritstjórnar ? Að jafnvel þó við getum ekki neitt sje bara vitleysa og grín ?! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer
Hefur virkilega enginn neitt um þetta að segja ? Oss finnst það grafalvarlegt mál ef trúa á falsmiðlafrjettum um meintan sigur á Slóvökum og draga með því í efa heilagan sannleik tilvitnaðra orða er ættuð eru frá hæstvirtri ritstjórn.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer
Þú bara skrifar spurninguna í svona innlegg, setur svona ? merki aftast og ýtir á senda.
Ekkert mál, jafnvel Hafnfirðingur gæti gert það.
Nú hló ég upphátt! Brosir hringinn
Pissar á sig af hlátri
Dáist að yfirgripsmikilli þekkingu Andþórs
Er virkilega ætlast til að vjer trúum því að það leynist ósannindi í texta háttvirtrar ritstjórnar ? Að jafnvel þó við getum ekki neitt sje bara vitleysa og grín ?! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer
Hefur virkilega enginn neitt um þetta að segja ? Oss finnst það grafalvarlegt mál ef trúa á falsmiðlafrjettum um meintan sigur á Slóvökum og draga með því í efa heilagan sannleik tilvitnaðra orða er ættuð eru frá hæstvirtri ritstjórn.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer
Reyndar má benda á það að skv. fréttum af atburði þessum þá var stórsókn andstæðinganna víst slík að eiginlega má segja að okkar menn hafi ekki getað neitt. Útlendingarnir voru víst líka óheppnir en við heppnir. Af þessu má draga þá ályktun að við getum ekki neitt og orðspor ritstjórnar stendur eftir óflekkað.
Svo má líka velta fyrir sér hvort að orðið jafnvel sér hér alhæfing um að Ísland sé alltaf í þeirri stöðu að geta ekki neitt - eða hvort það þýði að ritstjórn segi Áfram Ísland jafnvel í þeim leikjum sem Ísland getur ekki neitt? Starir þegjandi út í loftið
Dáist að yfirgripsmikilli þekkingu Andþórs
Takk takk, ef það er eitthvað að þá veistu hvert skal leita.
Ég myndi líklega nenna að horfa á einn og einn leik, jafnvel af og til ræða fótbolta. Ef ekki væri fyrir þá staðreynd að þetta er hundleiðinlegt sport sem snýst að mestu leiti um peninga og meiðsl. Og þá ekki hvernig fólk slasast heldur hversu lengi það hefur verið slasað og hvað það getur ekki gert á meðan það er slasað. Algjör grútur.