Ég á ekki til orð. Íslenska landsliðið vann áðan. Reyndar þýðingarlausan leik, en leik öngvu að síður.
Sóknarleikur liðsins orðinn slíkur að meira að segja Liverpoolmaðurinn Skrtl fékk ekki við strákana okkar ráðið.
Eftirtektarvert að Eiður Smári kemur vel undan vetri, greinilega nóg beit á bekknum hjá Barcelona.
Húrra fyrir strákunum.
Knattspyrna? Á Gestapó?
Nei takk, ég er farinn áður en ég fransós eða eithvað verra af þessum boltaleikjum.
Á ekki að ræða áhuga á sveittum hálfnöktum karlmönnum eltandi leður sem fara svo saman í sturtu á eftir einhversstaðar annarsstaðar en þar sem börn og aðrir sakleysingjar gætu verið á ferli?
Ég held það sé nú í lagi að ræða svona á Gestapó. Knattspyrna hefur eingöngu einu sinni ollið stríðsátökum svo skjalfest sé, það var á milli einhverra bananalýðvelda í suður ameríku hverra nöfn eru mér hulin akkúrat núna. Hinsvegar hafa stríðsátök brotist oftar út á síðum Gestapó svo ég held að það sé nú í lagi að ræða þessi mál.
Leikurinn já... sá hann reyndar ekki.
Hefur vígbúnaðarkapphlaup Sameinaðs Herafla Antísportista (SHA) - sem eðli málsins samkvæmt er ekki mjög árangursríkt
Ég horfði stundum á fótbolta í gamla daga og hélt þá með Arsenal. Þá voru kallar eins og Pat Jennings, David O' Leary og einhverjir sem ég man ekki engur hvað heita upp á sitt besta. Núna, ef ég slysast til að sjá fótboltaleik, horfi ég bara á lærin á þeim.
Ahhh, Pat Jennings, minn uppáhaldsmarkvörður. Það eina sem að ég átti í vandræðum með að samþykkja með hann var að hann skyldi spila fyrir Arsenal. Hann er golfkennari í dag, ætti að skella mér á námskeið.
Það er aðeins eitt gáfulegt við knattspyrnu, og það er George Best !
Leggja skóna á hilluna til að geta drukkið, er aðdáunarvert !
Það er aðeins eitt gáfulegt við knattspyrnu, og það er George Best !
Leggja skóna á hilluna til að geta drukkið, er aðdáunarvert !
Ertu þá Hemma Gunn aðdáandi?
Nei, hann kann jú að djamma og djúsa en knattspyrnu hef ég aldrei nennt að fylgjast með.
Hemmi Gunn
Bjarni Fel
Rúnni Júl
Albert Guðmundsson
Voru einhverjir betri?
Hemmi Gunn
Bjarni Fel
Rúnni Júl
Albert Guðmundsson
Voru einhverjir betri?
Já...
Hvæsi Bsti !
Var leikur? Og ég vissi ekki af því?
Er það ótrúlegt? Nei, ég veit aldrei af því ef það er leikur. Eins gott líka.
Gengur í SHA og hjálpar Günther við vígbúnaðarkapphlaupið. Sem gengur illa, enda kann súg ekkert annað en að malla kakó
Er virkilega ætlast til að vjer trúum því að það leynist ósannindi í texta háttvirtrar ritstjórnar ? Að jafnvel þó við getum ekki neitt sje bara vitleysa og grín ?! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer
Sest ofan á SHA og kremur það
Áfram Arsenal, Holland og Sindri Hornafirði!
Ég á ekki til orð. Íslenska landsliðið vann áðan. Reyndar þýðingarlausan leik, en leik öngvu að síður.
Sóknarleikur liðsins orðinn slíkur að meira að segja Liverpoolmaðurinn Skrtl fékk ekki við strákana okkar ráðið.
Eftirtektarvert að Eiður Smári kemur vel undan vetri, greinilega nóg beit á bekknum hjá Barcelona.
Húrra fyrir strákunum.
Ég bjóst nú alveg eins við sigri eftir að eini leikmaður Slóvaka sem ég kannaðist við hefur helst unnið sér það til frægðar að láta Wes Brown, þann annars ágæta varnarmann, skora hjá sér. Reyndar sá ég ekki leikinn, þar sem við völd á stöð 2 sport fær hroll eru bévítans drullusokkar sem heimta að maður borgi þeim fyrir að sjá leiki íslenska landsliðsins.
Ahhh, Pat Jennings, minn uppáhaldsmarkvörður. Það eina sem að ég átti í vandræðum með að samþykkja með hann var að hann skyldi spila fyrir Arsenal. Hann er golfkennari í dag, ætti að skella mér á námskeið.
Þá var nú Grobbelaar skemmtilegri. Hann var skemmtikraftur. Spilaði að vísu fyrir Liverpool, en enginn er fullkominn.
Ég á ekki til orð. Íslenska landsliðið vann áðan. Reyndar þýðingarlausan leik, en leik öngvu að síður.
Sóknarleikur liðsins orðinn slíkur að meira að segja Liverpoolmaðurinn Skrtl fékk ekki við strákana okkar ráðið.
Eftirtektarvert að Eiður Smári kemur vel undan vetri, greinilega nóg beit á bekknum hjá Barcelona.
Húrra fyrir strákunum.
Ég bjóst nú alveg eins við sigri eftir að eini leikmaður Slóvaka sem ég kannaðist við hefur helst unnið sér það til frægðar að láta Wes Brown, þann annars ágæta varnarmann, skora hjá sér. Reyndar sá ég ekki leikinn, þar sem við völd á stöð 2 sport fær hroll eru bévítans drullusokkar sem heimta að maður borgi þeim fyrir að sjá leiki íslenska landsliðsins.
Þetta ætti að varða við lög. Ég er búinn að heita því að borga ekki af þessari okurstöð. Frekar horfi ég á nútímafimleika á RÚV. Og skrepp einu sinni til tvisvar á vetri til Englands á leik.
Annars skilst mér að titturinn frá Akureyri, Aron Einar, hafi ásamt hliðverðinum Kjartani verið besti maður Íslands.