Það tilkynnist hjer með opinberlega að eitt þekktasta kennileitið á leiðinni norður hefur verið skemmt. Um er að ræða eftirfarandi kennileiti;
FLATUS LIFIR !
Fyrir fáeinum árum var kennileiti þetta orðið ógreinilegt og var það þá endurbætt og varð svona:
FLATUS LIFIR ENN !
Nú hefur hinsvegar verið sett auglýsingaspjald yfir hluta kennileitisins. Þetta fræga kennileiti lítur þar af leiðandi svona út:
FLATUS LIFIR E
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer
já auglýsingar auðvaldsins eru ógeð.
Ég get svo svarið það að ég hef alltaf lesið þetta sem flatlúsGlottir eins og fífl
Ég get svo svarið það að ég hef alltaf lesið þetta sem flatlúsGlottir eins og fífl
Þú og þinn hugsunarháttur
Felur orðabókina
Ég get svo svarið það að ég hef alltaf lesið þetta sem flatlúsGlottir eins og fífl
Og var þá merkingin eitthvað sem þú gast samsamað þér með, eða eitthvað sem þér hefur verið hugleikið, eða þú þurft að hafa áhyggjur af. Setur upp kvikindislegan undrunarsvip

Það eina sem gat skilist held ég bara, ég veit ekki um neitt sem heitir Flatus.Starir þegjandi út í loftið
Það er klárt mál að Óvinir ríkisins voru þarna að verki.
Ég legg til að við fjölmennum í kvöld og fjarlægjum skiltið.
Fyllir tankinn á landróvernum
Hver er með ?
Nú er ég svo kölkuð að ég hef ekki grænan grun um staðsetningu þessa kunnuglega kennileitis.Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Ungdómurinn í dag....... Fussar og sveiar
Lifir E? Er þá verið að gefa í skyn að hann hafi lifað það af að taka inn E-pillu? Ekki þykir mér það nú góð latína að hafa fyrir börnum þessa lands...
Mest óttumst vjer að þetta E standi fyrir EKKI Fölnar upp við tilhugsunina
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Já hann lifir semsagt. Ánægjulegt.
Mikil synd. Mig langar alltaf í bol með þessari áletrun.
Flatus lifir ekki á Dubliners barnum á Strikinu. Dæsir mæðulega yfir því að einungis tveir aðrir Gestapóar koma til með að skilja þessa setningu