Veðurvélin er klárlega ekki týnd. Við vitum bara ekki hvar hún er niðurkomin, og einhver er að fikta í einhverju sem viðkomandi veit ekki hvað er né hvernig virkar.
Ég þakka nú bara fyrir að sami aðili sé ekki með puttana í tímavélinni.
Við vitum nú reyndar ekkert um það. Fyllist skyndilegri skelfingu Hvað ef einhver óvitinn er með veðurvélina og fer með hana í tímavélina... og... og... stillir á steikjandi hita þegar ísöldin var að byrja? Það gæti haft hræðilegar afleiðingar!
Hvernig ætli mammútar bragðist?Starir þegjandi út í loftið
Reyktir mammútar með baunakássu! Sleikir útum
Setur á sig smekkinn
Slefar óhugnalega
Dregur baunadós úr hatti sínum
Reykir tvo mammúta Iss, ekkert Nikótín.
Hver setti lak yfir veðurvjelina? Sólskinið nær ekki að skína gegnum lakið! Dregur lakið af en fattar að undir því er bara gamall Zetor Hvæsi! Er þetta orðið að veðurtraktor? Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Ég er að velta fyrir mér hvort þetta þetta sé veðurvélin? Að minnsta kosti virðist maðurinn ekkert vita hvað vélin gerir. Mjög grunsamlegt og dularfullt.
Það er nú senilega orðið alveg ljóst að veðurvélinni var rænt af óvinum ríkisins og seld á partasölu. Eins og fram kom í félaxriti mínu http://baggalúti.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=2943&n=6630 þá virðast hinu virku partar hennr vera komnir í mína umsjá. En ég get með stolti sagt, að eins og sést hefur á veðurfarinu í sumar, hefur okkur í Veðurfarstofnun Baggalútíska heimsveldisisns, tekist alveg bærilega upp í að fínstilla hina nýju veðurvél. Heitasta sumar frá upphafi mælinga og nýtt hitamet hér á Stór-Baggalútíusvæðinu er staðreynd.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að oss rámar í að hafa hjer eða á Kaffi Blút farið fram á að fá samskonar hitabylgju í sumar og kom 2004. Eigi vorum vjer bjartsýnir á að hinar baggalútísku veðurgræjur væru orðnar svo fullkomnar að það tækist en nú er orðið ljóst að það tókst Ljómar upp. Leggjum vjer hjer með formlega til að engar breytingar verði gerðar á stillingum veðurvjelarinnar á næstunni.
Hvaða hrokkinhærðum hrúðurkarli dettur í hug að heitasti staðurinn á landinu eigi að vera á suðvesturhorninu? Er hugsanlegt að forsetaembættið beri ábyrgð á því að hin austfirsku sumur eru flutt suður? Viljiði senda þessa !#!?$#%!!##&* veðurvél í brotajárn nú þegar eða ég kem í heimsókn!

Ég held það væri ráð að fjarlægja gripinn sem maðurinn er með á myndskeiðinu sem ég setti hlekk á. Hann er pikkandi og potandi um allt karlinn. Meðan ekki er vitað fyrir víst hvar mikilvægir hlutar vélarinnar eru er þetta afar ótraustvekjandi. Er ekki ögn kaldara í lofti en í gær?

Þetta horfir allt til bóta. Spáir dásamlegum vestanáttum fram yfir helgi. Reimar á sig gönguskóna og horfir háleitur á ósigraðan tind helgarinnar
Vedurvèlin virkar alveg hreint fràbaerlega hèr vesturundan saharastrondum. Hins vegar virdist vèlar-òfètid hafa skemmt alla ìslensku stafina ì tolvunum. Svo spurningin er:
a) Brennandi sòl Setur Aloe vera gel à axlirnar
eda
b) Adgangur ad sèr-ìslenskum stofum? Reynir ad gefa til kynna ad àtt sè vid stafi en ekki stofur
Hvaða hrokkinhærðum hrúðurkarli dettur í hug að heitasti staðurinn á landinu eigi að vera á suðvesturhorninu? Er hugsanlegt að forsetaembættið beri ábyrgð á því að hin austfirsku sumur eru flutt suður? Viljiði senda þessa !#!?$#%!!##&* veðurvél í brotajárn nú þegar eða ég kem í heimsókn!
Það kemur hreint alls ekki til nokkurra einustu mála að hróflað verði við veðurvélinni. Hún er nú þegar komin undir stöðugan vörð færustu sérsveitarliða PRESSECPOL sem hafa heitið mér því að verja hana til síðasta blóðdropa. Ég vil því biðja þig þess lengstra orða að láta þér ekki detta í hug að reyna að ímynda þér einhvern örlítinn möguleilkka á því að þú getir á einhvern hátt skaðað vélina. Fer í talstöðina til að fá staðfestingu á vaktaskiptum kl: 2100
Vedurvèlin virkar alveg hreint fràbaerlega hèr vesturundan saharastrondum. Hins vegar virdist vèlar-òfètid hafa skemmt alla ìslensku stafina ì tolvunum. Svo spurningin er:
a) Brennandi sòl Setur Aloe vera gel à axlirnar
eda
b) Adgangur ad sèr-ìslenskum stofum? Reynir ad gefa til kynna ad àtt sè vid stafi en ekki stofur
Lítið mál er að komast hjá þessu. Þeir stafir sem við táknum með æ-i og ö-i eru ekkert annað en lígatúrur (límstafir) fyrir ae* annarsvegar og oe hinsvegar. Þegar lígatúrurnar eru ekki í boði skrifar maður þær einfaldlega út.
* Nema vitanlega í þeim orðum þar sem ó er í stofni, sbr. ágætt fjelagsrit Mosu frænku.