Þarf ekki að fara að skipta á þér Hexia?
Skipta á mér og hverri? Glottir eins og fífl
Er nokkuð Sporbaugur, Lengdarbaugur eða Breiddarbaugur í baugahverfinu?
Hættið svo þessum kítingi... Maður fer að halda að þið séuð hjón!!!!!!
Veit Ívar af þessu??????? Glottir eins og fífl
Þetta eru auðvitað ekkert annað en nafnrýma árekstrar þar sem gert er ráð fyrir að öllum sé ljóst við hvaða nafnrými er átt við.
Lausnin er auðvitað að nota ávallt fullt heiti með erfðum og ekki styttingarnar.
Lækjargöturnar verða því ritaðar Reykjavík.Lækjargata og Hafnarfjörður.Læjargata, þar fer ekkert á milli mála. Til að forða vandræðum vegna Þórshafnar er líklega sniðugast að gera líka ráð fyrir að ekki séu allir að vinna í nafnrýminu Ísland og tilgreina það einnig. Semsagt Ísland.Þórshöfn.Fjarðarvegur og á sama hátt Ísland.Reykjavík.Suðurlandsbraut.
Ef það á síðan að vísa í ákveðið húsnúmer þá skal það vitanlega gert á eftirfarandi máta:
Ísland.Reykjavík.Eggertsgata[32]
Gresjan.Texi.Varðeldur?
Mér finnst alltaf mjög heimsborgaralegt að keyra um í Húnavatnssýlsu fram hjá Svertingjastöðum og Vatnsdalshólum. í Sveinsstaðahreppi. Eitthvað svo lipurt og tamt í munni.
Það eru að vísu Svertingsstaðir, ekki Svertingjastaðir.
Það eru að vísu Svertingsstaðir, ekki Svertingjastaðir.
Bíddu, er það ekki á Negranesi?
Takk fyrir að leiðrétta mig, mjög rökrétt að skýra bæ eftir manni af hörundsdökkum kynflokki, hann hlítur þó að hafa velt fyrir sér nafninu Hvítjingarstaðir og Gulleðursstaðir. Einnig er það óvíst hvort eigandi bæjarins hafi getað órað fyrir því hversu fjölþjóðlegtar sveitir landsins eru nú orðnar og eigi óvíst að svertingi eigi eftir að búa á þessum bæ í komandi framtíð.
Svertingur er nú bara karlmannsnafn og segir ekkert um hörundslit viðkomandi.
Alveg eins og nafnið Ertingur myndi ekki endilega þýða að maðurinn væri pirrandi.
Svertingur á Svertingsstöðum er víst nefndur í Þórðar sögu hreðu.
Merkilegt hvað maður getur verið fáfróður, og nafn hefur væntanlega verið samþykkt af manna nafna nefnd.
Þessar upplýsingar fékk ég nú bara eftir stutta leit með Gúglinu. Ég veit ekki til þess að mannanafnanefnd hafi verið til á þjóðveldisöld.
Ekkert að Svertingi sem mannsnafni. Það fallbeygist eftir Íslenskum reglum, og þar með er það gott og gilt.
Svertingsstaðastígur, Svertingsstaðaleyni, Svertingsstaðavöllur... Gæti verið lausnin, efa að slíkar götur finnist í Færeyjum eða á Hjaltandseyjum.
Ef það á síðan að vísa í ákveðið húsnúmer þá skal það vitanlega gert á eftirfarandi máta:
Ísland.Reykjavík.Eggertsgata[32]
Þannig að göturnar eru fylki?
Þess má geta að svertingur og svertingi er ekki það sama og ekkert svipað nema að stafsetningunni til. Svertingi er náttúrulega bara hörundsdökk manneskja en hitt er meira til lýsingar. Það að verða sér til svertings er að koma óorði á sjálfan sig. Þetta er líklegast eitthvað sem hefur þá gerst fyrir vestan að Svertingsstöðum, þó ekki kunni ég söguna sjálfur. Rétt hjá Svertingsstöðum eru svo Sveðjustaðir. Þetta er allt þarna á svipuðum slóðum og Reykjaskóli minnir mig.