Ef mig misminnir ekki enda götuheiti á Reykhólum á -tröð og sú sem er næst sjónum heitir Martröð, a.m.k. í daglegu tali.
Það hryggir mig að vera að reyna að rengja þig, en nær allrar görur á Reykhólum nefnast -braut, nema Karlseyjarvegur sem nær frá þjóðvegi og út í Karlsey þar sem þörungarverksmiðjan stendur.
Ég gerði mjög stutta könnun og sá þar eitt götuheiti á Reykhólum, Maríutröð.
Kannski ekki alveg að marka mig. líklega 12 -13 ár síðan ég var þarna í sveitinni í kring. Má búast við að einhver uppbygging hafi verið síðan svo ég ætla nú ekki að fara að þræta.
Ekki ætla ég að þræta, enda bara einu sinni komið þangað. En vinafólk foreldra minna var þá að reisa hús við nefnda Martröð.
Held að það sé líka Martröð á Dalvík....... En það telst varla til mannabústaða
Það er nú alls ekki versta plássið í Eyjafirði.
Ég held að það sé Martröð í Kópavogi. Vel viðeigandi, finnst mér.
Þeir kalla þessa götu í daglegur tali Draum um bæjarstjóra.
Mér finnst vanta Texaflöt. Mér finnst líka að það þurfi að leiðrétta smá misskilning um Blesagróf. Þetta heitir nefnilega ekki Blesugróf heldur Blesagróf. Þarna gróf ég nefnilega Blesa minn, sko ekki Blesa sem ég á núna heldur gamla Blesa. Bles(s)uð sé minning hans.
En Marflöt.
Hvers vegna er ekki Hálsbraut í Hálsahverfi? Af hverju er ekki Hóruhús í Húsahverfi? Af hverju eru ekki Eyrnaskjól í skjólunum?
Já, eða Raðhús Hesthús Náðhús Líkhús og Frystihús? Svo er síðuhverfi á Akureyri. Það vantar samt Blaðsíðu, Heimasíðu og Slagsíðu!!
Já, eða Raðhús Hesthús Náðhús Líkhús og Frystihús? Svo er síðuhverfi á Akureyri. Það vantar samt Blaðsíðu, Heimasíðu og Slagsíðu!!
Að maður tali ekki um Forsíðu, Heilsíðu, Hálfsíðu og Baksíðu. Enn fremur er á Hornafirði gata sem heitir Júllatún. Þar finnst mér að ætti líka að vera Lúnítún og Kartún.
En Síðuspik?
Í Hafnarfirði er Kaplakriki, en Handakrika finn ég hvergi. Einnig er þar Hraunbrún en eigi Kolbrún.
Á Selfossi eru t.a.m. Þórsmörk og Grænamörk. Þegar elliheimili var reist við Grænumörk var það umsvifalaust skírt Ellimörk.
Á Egilstöðum og í Reykjavík má finna Skógarsel. Hvað varð um Útsel og Blöðrusel?
Á Egilsstöðum er gata sem heitir Einbúablá... ekki vildi ég búa þar!
Afhverju ekki? Þú ert blár og alveg örugglega einbúi.
Afhverju ekki? Þú ert blár og alveg örugglega einbúi.
Hvað er verið að núa manni um nasir að maður er óheppinn í kvennamálum? Hvað veist þú eiginlega um mín kvennamál? Dóni!
Þú hagar þér bara þannig að ég á bágt með að trúa að einhver hafi nennt að halda áfram uppeldinu þar sem foreldrum þínum sleppti. Glottir eins og fífl