Hvað þá Viðbótarstræti, Varastræti og Extrastræti.
Svo er það vissulega athyglisvert að það eru til strætisvagnar og keyra þeir um stræti. Mega þeir þá bara aka um Aðalstræti, Bankastræti, Austurstræti, Hafnarstræti og Pósthússtræti en koma til dæmis aldrei á Suðurgötu, Túngötu, Tryggvagötu, Hverfisgötu, Lækjargötu, Laugaveg, Hringbraut o.s.frv.
Þið eruð að misskilja. Það ætti að banna margar götur með mörgum nöfnum! Ímyndið ykkur veröld með einu götunafni. Fólk ruglast aldrei framar á götunöfnum eftir þessa skynsamlegu breytingu.
Þið eruð að misskilja. Það ætti að banna margar götur með mörgum nöfnum! Ímyndið ykkur veröld með einu götunafni. Fólk ruglast aldrei framar á götunöfnum eftir þessa skynsamlegu breytingu.
Eins og ég sagði hér framar á þræðinum, allar götur eiga að heita Túngata.

Hvað um fjárgöturnar , mógöturnar og einstigin?
En Goggur... það sæist ekki í húsin fyrir húsnúmerum!
Það væri þá möguleiki á að vera með sama húsnúmer og kennitölu... það væri skondið.
Það væri þá möguleiki á að vera með sama húsnúmer og kennitölu... það væri skondið.
Hjálpi mér, ekki flytja nema einu sinni, þegar þú flytur að heiman.
Það væri þá möguleiki á að vera með sama húsnúmer og kennitölu... það væri skondið.
Nei, ég efast um að það dygði lengi að vera með kennitöluna 43
Iss, ekkert mál að hafa há húsnúmer. Ég bjó í hús í bandaríkjahreppi sem var númer 18062. Vegurinn heitir sama nafninu þvert yfir sýsluna.
Og það er maður á Selfossi sem er svo gamall að hann er með kennitöluna 1!
Eigi sjáum vjer nein vandamál við að hús verði með 10-15 stafa númer. Símanúmer eru t.d. víða svoleiðis og enda eflaust svoleiðis hjer á landi líka. Vjer munum t.d. þá tíð er öll símanúmer hjer á landi voru einungis 5 stafir á lengd Ljómar upp.
´Wg man 4 stafa símanúmer... Finnst hann gamall
Númerið heima hjá mér var 2322 í gamla daga.
En ég legg til að búin verði til Hvæsagata, jafnvel "Hvæsamagrastræti"
Einsog á akureyri Ljómar upp
Númerið heima hjá mér var 2322 í gamla daga.
En ég legg til að búin verði til Hvæsagata, jafnvel "Hvæsamagrastræti"
Einsog á akureyri Ljómar upp
Meinaru svona öfugmæla stræti?
Er búið að ræða allar Hafnargöturnar um landið þvert og endilangt, alla vega með ströndinni? Skólabrautirnar, Kirkjustrætin. Þetta er mikið verkefni.
Þegar ég bjó í Vestmannaeyjum var símanúmer heimilisins 1353.
Mig rámar í gamla sveitasímann, stutt-löng stutt-löng eða eitthvað svoleiðis. Svo kom nútíminn og með honum fjögurra stafa símanúmer.
ÉG man eftir því að hafa farið í veiði austur í Selá í Vopnafirði þegar ég var krakki. Þar gistum við á (v)eyðibýlinu Leifsstöðum. Þar var sveitasími sem mér fannst mjög gaman að hlusta á þegar sveitin rabbaði saman. Skaut svo inní orðum og skellti á.