Þar eð nokkuð er um ýmis dýr af kattaætt hjer á Gestapó fórum vjer að velta fyrir oss hvort ekki væri ástæða til að lýsa yfir stríði á hendur öllum löndum er stunda þann sið að slá ketti úr tunnum á öskudag. Einnig má íhuga hernaðaraðgerðir gegn Akureyringum og fleiri stöðum af sama tilefni. Fyrsta skrefið er að banna alla sölu á tunnum til viðkomandi staða/ríkja. Næsta skref er síðan hernaðaraðgerðir (því viðskiptaþvinganir eru venjulega alltof lengi að hafa tilætluð áhrif). Fleiri hugmyndir að aðgerðum eru vel þegnar.
Ég legg til að við byrjum á því að hýða afmánina hann Skrepp seiðkarl. Verður huxað til síðasta félagsrits Hann er ekki kattavinur. Bíttann Tigra, bíttann.
Eina lausnin er að segja leikskólabörnum stríð á hendur. Litið hefur verið framhjá siðleysi þeirra of lengi! Sökum hvers? Aldurs? Síðan hvenær var aldur afsökun? Eðlilegt væri að einangra alla leikskóla Reykjavíkur og nágrennis um hádegi næstkomandi mánudags.
Goggurinn hefur nokkuð til síns máls.
Við verðum að berjast gegn þessari ógn sem tröllríður landinum einn dag á ári hverju.
Lítið fólk, uppáklætt sem vættir og ruslaralýður, truflandi atvinnulífið með laglausum söng og sælgætisbetli er eitthvað sem
hinn almenni borgari á ekki að þurfa að sætta sig við !
Gerir klárar lyftiduftssprengjur og Hvæsibombur
Hugmyndir Goggsins eru óvitlausar utan hvað rjett væri að hefja aðgerðir strax í fyrramálið enda eigi ráð nema í tíma sje tekið, einungis er tæpt ár í næsta öskudag. Þögn kattardýranna hjer um þetta mikilvæga og grafalvarlega mál veldur oss hinsvegar talsverðri undrun.
Hugsar sig um Hvað með tímavjelina, Vladimir? Er það henni nokkuð um megn að ferðast 5 daga aftur í tímann? Ég er hræddur um að það sé eina leiðin til að heimta vort kattarkyn úr helju.
Eigi er það vandamál. Vjer þurfum bara að koma tímavjelinni í lag og ætti það að takast á næstu vikum. Reyndar höfum vjer lengi ætlað að rita fjelagsrit um tímavjelar en höfum eigi nennt því þannig að vjer þurfum að koma henni í lag svo vjer getum skroppið fram í tímann, sótt fjelagsritið og birt það hjer Ljómar upp.
Best væri þá að geta ferðast þessar nokkru vikur fram í tímann til að geta farið aftur í tímann með starfhæfri tímavjel.
Rekur augun í þennan stórmerkilega og þarfa þráð
Nú erum við að tala!
Mér finnst að það eigi að setja alla þá í tunnur sem hafa aðhafst þetta, og ekki hleypa þeim út aftur!
Knúsar Vlad fyrir stórgóða hugmynd
Best væri þá að geta ferðast þessar nokkru vikur fram í tímann til að geta farið aftur í tímann með starfhæfri tímavjel.
Það er afbragðs hugmynd sem hefur alveg farið framhjá oss Ljómar upp. Þegar tímavjelin kemst í lag verður það því vort fyrsta verk að skreppa fram í tímann og sækja fleiri tímavjelar svo vjer getum komið oss upp stórum lager af þeim Ljómar upp.
Ég legg til að við byrjum á því að hýða afmánina hann Skrepp seiðkarl. Verður huxað til síðasta félagsrits Hann er ekki kattavinur. Bíttann Tigra, bíttann.
Hann er sko ekki í náðinni hjá Dýramálaráðuneytinu get ég sagt þér.
Rekur augun í þennan stórmerkilega og þarfa þráð
Örlítil leiðrjetting, þetta er Vlad þráður en eigi Þarfa þráður Glottir eins og fífl.
Rekur augun í þennan stórmerkilega og þarfa þráð
Örlítil leiðrjetting, þetta er Vlad þráður en eigi Þarfa þráður Glottir eins og fífl.
Ég biðst innilegrar afsökunar. Þarfi er ekki einu sinni búinn að tjá sig hér!
Þú færð að sjálfsögðu fullan heiður.
Svei mér ef þú átt ekki í vændum að verða titlaður heiðursmeðlimur Kattaverndunarfélags Bagglútíu.

Og kannski þitt eigið klóruprik! Ljómar upp
Glottir yfir tilhuxuninni að láta leikskólabörn slá Tígrisdýr úr tunnunni...
Ég legg til að við byrjum á því að hýða afmánina hann Skrepp seiðkarl. Verður huxað til síðasta félagsrits Hann er ekki kattavinur. Bíttann Tigra, bíttann.
Hann er sko ekki í náðinni hjá Dýramálaráðuneytinu get ég sagt þér.
Hann hefur reyndar ekki sést síðan þú last honum pistilinn í umsögn þinni um félagsritið hans. Þú hefur þó ekki étið hann á eftir? Hann var reyndar ekki ólíkur þurrkuðum færeying, eftir myndinni af honum að dæma.
Jæja, kominn er mánudagsmorgunn og tími kominn til aðgerða Ljómar upp.
Sækir allar tunnurnar á planið Eigum við að nota þær eða brenna þær?
Eða bæði?Ljómar upp