Jæja , ég hef frétt af djammþyrstum gestapóum einsog Norninni og Rattata sem vilja óð fá eitthvað smá í kroppinn svona eftir páskana, það vill svo skemmtilega til að ég er ekkert að gera neitt sérstakt næsta föstudagskvöld þannig að ef þið viljið vera með mér á fyllerí þá er það velkomiðGefur frá sér vellíðunarstunu
Cout me out.
Upptekinn við mikilvæga hluti.
Jæja , ég hef frétt af djammþyrstum gestapóum einsog Norninni og Rattata sem vilja óð fá eitthvað smá í kroppinn svona eftir páskana, það vill svo skemmtilega til að ég er ekkert að gera neitt sérstakt næsta föstudagskvöld þannig að ef þið viljið vera með mér á fyllerí þá er það velkomiðGefur frá sér vellíðunarstunu
Mér sýnist á öllu að því miður geti ég ómögulega mætt þar sem ég er í hinum svokölluðu útlöndum.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Nei, nei, nei.
Almenn Hegningarlög Bagglýzka Heimsveldisins
24. grein
a) Ekki skal halda raunheimahittinga síðustu helgi mánaðar.
-Undantekningu má þó veita, sjái raunheimahittingsstjórnandi raunheimahittingsþolum fyrir blút, ákavíti eða sambærilegum drykkjum.
Eitt orð fyrir þig SPARAGlottir eins og fífl
Við Ívar verðum því miður ekki með. Raunheimaleikarar okkar þurfa að vera hjá raunheimabörnunum sínum, þar eð annað þeirra á afmæli á föstudeginum.
Jamm. Öndin verður því miður upptekin við að hjálpa fjölskyldunni við flutninga um helgina. Þakkar samt gott boð.
Því miður, ég er upptekin við að bíða alla næstu viku.
Eftir hverju ertu að bíða? Godot?
Nei, ég held ekki. Það kemur bara í ljós þegar þar að kemur.
Þá endar þetta með því að við Rattatið verðum blindfull á trúnó í þeim bleika.Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Stefnir í það. En nornin? Var hún ekki orðin eitthvað FULL tilhlökkunar eða eitthvað?
Jú ég ætla rétt að vona að þau á Bjúwing búgarðinum komi nú.xT
Væri gaman að sjá þau, það er víst.
djöfullinn rallháflur! Ég hefði gjarnan viljað sulla í einhverju með Rattata.
Heitum potti til að mynda? Flissar og roðnar Kjánaprik.
Það getur ekki verið, myndavjelar þola illa vatn og heita gufu frá heitum pottum.
Þú klikkar á einu Vlad minn. Ég er nýkominn frá ammríkunni og það er sko allt til í ammríkunni....nema tímavélar. Ennþá.
Heitum potti til að mynda? Flissar og roðnar Kjánaprik.
Drykkja í heitum potti er svo sem ekki afleit hugmynd... en ég efast um að baðkarið hjá Dulu sé nothæft sem heitur pottur...