Það hafa allir lent í því að hafa gert vísu sem nokkru síðar er hálfkjánaleg... hér er t.d. vísa ort fyrir sirka 4 árum síðan:
Klámið hér er komið það
kannske við oss loða
bannað verður börnum að
baggalútinn skoða
Þá er ágætt að lagfæra og endurvinna... Ný útgáfa:
Klámið ljótt í kjafti brenn-
ur kámugt eins og froða.
Bannað verður börnum senn
Baggalút að skoða
Þessi þráður gengur semsagt út á að endurvinna gamlar vísur sem þið hafið gert og færa til betri vegar (ekki er alltaf víst að það takist)...
Hér er enn endurunnið - fyrir:
Vakna latur vantar nú
vara orku fína
Drekk þá kaffi draumsýn sú
að dugnað þá mun sýna
eftir:
Vaknar slen, það vantar æ
vara orku fína
Drekk því kaffi, draumsýn fæ
ég dugnað muni sýna