— GESTAPÓ —
Mikilvæg yfirlýsing að gefnu tilefni
» Gestapó   » Baggalútía
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 20/1/08 22:50

Að gefnu tilefni og til að hindra að óæskilegur orðrómur kunni að fara á kreik viljum vjer hjer með taka skýrt fram og lýsa yfir opinberlega að allur kostnaður vegna fatakaupa ráðherra og embættismanna í Baggalútíu er að sjálfsögðu greiddur 100% (stundum m.a.s. meira en 100%) af ríkissjóði Baggalútíu. Sje öðru haldið fram er þar á ferðinni rógburður sem kominn er frá óvinum baggalútíska heimsveldisins.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 20/1/08 22:53

Þetta minnir mig á að ég þarf að endurnýja öll mín betri föt. ‹Skoðar Armani bækling›

Verðlaunaður séntilmaður. HEIMSMEISTARI í teningakasti 2007 og 2008. BLÁR.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
albin 21/1/08 00:55

Það minnir mig á að ég þarf að fá mér betri föt, til að geta endurnýjað þau.

-------- Sérlegur launmorðingi Forstjóri Hlerunarstofnunar Tilræðisráðherra Snillingur Orginal
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tina St.Sebastian 21/1/08 00:59

Mig vantar nýjan mítur.

- Passív-aggressívur erkióvinur ritstjórnarmeðlima hverra nöfn hefjast á 'E' - •  Verndari alls karlkyns- Biskup yfir westurhluta Íslands- Umsjónarmaður, hönnuður, verktaki og æðsta yfirvald í málefnum Torgs Hinnar Heilögu Ritstjórnar-
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 21/1/08 03:40

‹mætir í Armani jakkafötum með demantsskreytta ermahnappa og í Lloyds skóm›
Þetta er náttúrulega bara vinnugallinn úr spillingarráðuneytinu.

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hóras 21/1/08 04:58

2008 línan af spennitreyjum er í þessum rituðu orðum í framleiðslu í barnaþr... ég meina saumastofu okkar í ... einhvers staðar löglega

Eigandi einnar af níu sálum Tigru • Eigandi Armani spennutreyju • Fjölmiðlaráðherra • Heilagur Ári Hreintrúarflokksins • Ekki hamstur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Rattati 21/1/08 05:24

Flott. Sendu mér 25 stykki, sendu svo reikninginn til Vladimirs

Formaður kvenfélagsins Truntan. Baróninn af Langtíburtistan.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Ég var einmitt að flissa yfir hvernig ég fór að því að eyða rúmlega 32 milljónum í sokka á meðan ég lá í dvala.

En það er engu að síður ánægjulegt að það megi ræða um þessi mál opinberlega hér um slóðir, sýnir hversu opnu og frjálsu samfélagi við lifum í.

‹hlær stórkarlalega og kveikir í öðru sokkapari›

Sir Bjargmundur Svarfdal frá Keppum KBE • Nefndarmálaráðherra og Utanríkismálaráðherra Baggalútíu • Stórriddari Baggalútíu
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: