Hendir Tigru út í snjóinn og þykist ætla að kaffæra hana. Heyrir fjarlæga hringingu
Ætli þetta sé sleði jólasveinsins? Rekur upp stór augu
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Þetta er Ísdrottningin!
...og þá er ég ekki að tala um góðu Ísdrottninguna okkar!
Stekkur bak við snævi þakinn runna með Hexiu í fanginu
Hjúfrar sig í tígrisfeldinn því snjórinn er svo kaldur
Ættum við kannski bara að fara aftur gegnum dyrnar?
Stormar að Tigru og Hexiu, snjóugur upp fyrir haus
Hvaða andskotans ólæti eru þetta?
Laumast út með Hexiu og lokar á nefið á Ívari
Flissar ógurlega
Flissar líka Jæja. Áfram upp! Mér sýnist stiginn skiptast í tvennt þarna... nei, þrennt! Vinstri, hægri, beint áfram?
Mmm... ahh... eee... áfram bara?
Er þetta niðursuðudós sem ég sé?
Þú ert þó ekki með dósaopnara?
Mmm... ahh... eee... áfram bara?
Er þetta niðursuðudós sem ég sé?
Þú ert þó ekki með dósaopnara?
Þetta er ég, ekki niðursuðudós. Ég er í svo bara asnalegri peysu. Fékk hana í jólagjöf og get ekki skipt henni.
Lítur upp úr töskunni sinni Nú, þið þurfið þá ekki hann þennan. Setur dósaopnarann aftur ofan í eldhúshólfið
Mmm... ahh... eee... áfram bara?
Er þetta niðursuðudós sem ég sé?
Þú ert þó ekki með dósaopnara?
Þetta er ég, ekki niðursuðudós. Ég er í svo bara asnalegri peysu. Fékk hana í jólagjöf og get ekki skipt henni.
Verður farlama í smá stund úr hlátri
Ó fyrirgefðu.
Ég sé það núna þegar þú reisir úr þér... þú ert svolítið eins og tinmaðurinn í galdrakarlinum í Oz.
Ég get þó farið úr peysunni. Reynir að fara úr peysunni
Tekst ekki
Ég sver ég hef farið úr peysu áður!
Rembist við að fara úr peysunni en það þýðir ekki
Afhverju í andskotanum get ég þetta ekki?
Lítur niður
Ó já peysan er girt niður í buxurnar.
Þú vilt kannski dósaupptakarann eftir alltsaman? Ljómar upp
Réttir fram klærnar og sker hringlaga op á peysuna hjá Andþóri
Stingur loppunni inn um gatið og kitlar Andþór
ahaaa aðeins neðar. Fínt að einhver nennir að klóra á manni bakið. Ljómar upp
Ég ætla ekkert að klóra þér á rassinum! Hvað helduru að Arfinn myndi segja?
Jah, hann myndi eflaust segja að Arfaklóra væri til ýmissa hluta nytsamleg... Starir þegjandi út í loftið