Piparkökur pressa´ á mig,
pakkar allir búnir.
Alltof miklu eyddi´ í þig,
aurar burtu flúnir.
Geðveikt drasl þú gafst mér tík,
gastu ekki valið betur.
Lygilega ljót er flík,
ljótur verð í allan vetur.
Jólakökur jólastress og jólasveinar
Makkintoss og grænar greinar.
Nú er hún gamla Grýla kvitt,
gafst hún upp á rólunum.
Það er gott að gera hitt
og gaman, líka á jólunum.
Það á að gefa bönkum Baug
að bítast um á jólunum.
Skattsvika- og skuldahaug
frá skjalatöskufólunum.
Sviðsstjóra sem sveik og laug
og svaf í skattaskjólunum.
Sá ég hvert gamla Grýla smaug
er Gaum hún fann á rólunum.
Það á að gefa bönkum Baug
að bítast um á jólunum.
Skattsvika- og skuldahaug
frá skjalatöskufólunum.
Sviðsstjóra sem sveik og laug
og svaf í skattaskjólunum.
Sá ég hvert gamla Grýla smaug
er Gaum hún fann á rólunum.
Klappar fyrir Billa
Frelsis hátíð helg og tær
heima verð um jólin.
kærleik hugans fögnuð fær
frið um hemsinsbólin.
Þegar kannan stendur á stól
og Stína fer í kjólinn,
Heyrist út um heimsins ból
er hringja' inn klukkur jólin.
[iTil byggða koma sveinkar svangir
svamla elginn uppí klof.
Utangátta larfar langir
lasta bóndans sauða krof.[/i]
Hátíð ber að höndum nú
Helg var jólanóttin
Húsfreyjan var hamslaus jú
Hólkvíð brókarsóttin
Jólin koma, Jesúbarn
í jötu sinni lyggur
Meðan spikað mörlandsskarn
margar steikur tyggur
Jólin hafa horfið! Hvurt
hefur strokið, fárið?
Jú, þau eru' á bak og burt
og bíða þar út árið.
Blessuð jólin eru enn
eflum sálar friðinn
Allir góðir mætir menn
melta og fylla kviðinn.
lít ég hérna lalla frænda
að leika jólasveininn
samur við sig (siður kind-a*)
sýnir mömmu fleininn
* Hér er ætlast til enskukunnáttu
Jólin liðu fögur fín
með flot og svið.
Þá birtist aftur bumban mín
sem blasir við.