Jæja, hvað segja menn?
Fannst tími til kominn að gömlu kanónurnar frá mótunarskeiði Baggalútíu hittust og ræddu málin. Hvernig eru stríðsmál? Innflytjendur? Kvennréttindabakslagið?
Nýgræðingar og önnur börn vinsamlegast haldi sig í leikjaherberginu.
Sest niður í Hugh Hefner jakkanum sínum með risastóran vindil og koníaksglas
Kveikir sér í vindli og fær sér koníak í glas Andvarpar Ekkert gengur í stríðsrekstri, bara friðsæld og rólegheit. Innflytjendur vaða uppi hvarvetna og tillögu minni um að reisa múr í kringum Baggalútíu til að sporna við vandanum hefur verið hafnað. Kvenfólkið er með yfirgang, reynir að hafa fingurnar í öllu sem maður gerir og ég þarf orðið að stunda mín viðskipti á bakvið luktar dyr. Ástandið er óbærilegt.
Skellir í sig öllu koníakinu og hellir skuggalega miklu koníaki í glasið í staðinn og heldur áfram að drekka
kemur í gættina Afsakið. Dúddi minn, mamma þín var að hringja, hún segir að þú skulir fara að koma þér heim í háttinn...
Leggur frá sér Financial Times. Hallar sér aftur í leðurhægindastólnum, bendir leðurdverg á að nudda iljarnar
Þetta er allt mestmegnis undir kontról eins og er. Nýliðamótun hefur gengið að óskum, endurnýjun í mannafla heimsveldisins hefur verið talsverð og komið í veg fyrir að öldrunarvandamál skeki þjóðfélagið. Það hefur náttúrulega mætt mikið á menntakerfinu, leikskólainnræting og almenn skólainnræting hefur gengið vel. Vel heila..hóst menntaðir nýliðar hafa jafnframt gengið fram fyrir skjöldu eins og nýir vendir, uppfullir af tærri hugsjón og eldmóði sem hefur haldið heimsveldinu á góðu róli og jafnframt hjálpað við að hei...menntaþvo enn nýrri nýliða. Það hefur bæst talsvert við embættismannahirðina og ekkert nema gott um það að segja. Ég tel að stjórnkerfið sé við það að verða sjálfbært, að því gefnu að óseðjandi landvinningar og almennur framgangur heimsveldisins haldi áfram.
Klippir af hálfs metra kúbuvindli, leðurdvergur kveikir í, púffar og hallar sér aftur, ánægður með gott ævistarf
kemur í gættina Afsakið. Dúddi minn, mamma þín var að hringja, hún segir að þú skulir fara að koma þér heim í háttinn...
Segðu henni að ég komi ekki heim fyrr en hún hefur keypt Honey Nut Cheerios!
Friðsæld? Rólegheit!? Blótar herfilega og rífur hár sitt
Andskotinn er þetta? Er þetta búið að breytast í lýðræði hérna? Vitið þið ekki að lýðræði er fyrir kellingar!?
Gerum bara svona fer að teikna drög að innrás í BelgíuHellir sér meira koníaki
Hvernig er það svo? Er ekki bara hægt að reisa einn risastórann nanóvegg? Fyrirframstilltar sameindir nanóveggjarins hleypa aðeins þeim inn sem þjást ekki af áunninni lesblindu.
Leggur frá sér Financial Times. Hallar sér aftur í leðurhægindastólnum, bendir leðurdverg á að nudda iljarnar
Þetta er allt mestmegnis undir kontról eins og er. Nýliðamótun hefur gengið að óskum, endurnýjun í mannafla heimsveldisins hefur verið talsverð og komið í veg fyrir að öldrunarvandamál skeki þjóðfélagið. Það hefur náttúrulega mætt mikið á menntakerfinu, leikskólainnræting og almenn skólainnræting hefur gengið vel. Vel heila..hóst menntaðir nýliðar hafa jafnframt gengið fram fyrir skjöldu eins og nýir vendir, uppfullir af tærri hugsjón og eldmóði sem hefur haldið heimsveldinu á góðu róli og jafnframt hjálpað við að hei...menntaþvo enn nýrri nýliða. Það hefur bæst talsvert við embættismannahirðina og ekkert nema gott um það að segja. Ég tel að stjórnkerfið sé við það að verða sjálfbært, að því gefnu að óseðjandi landvinningar og almennur framgangur heimsveldisins haldi áfram.
Klippir af hálfs metra kúbuvindli, leðurdvergur kveikir í, púffar og hallar sér aftur, ánægður með gott ævistarf
Jæja, þetta hljómar þó ágætlega. Hvernig gengur svo í heila...hóst menntuninni? Það eru engin alvarleg "þroskafrávik" eins og síðast?
Slík atvik hafa komið upp og hafa þau jafnóðum verið afgreidd.
Mig minnir reyndar að Vladimir hafi óvart rekist í einhvern takka og að Belgía sé ekki lengur á kortinu. Ég held hins vegar að Holland sé ennþá til. ÉG legg til að við rænum Rauða Hverfinu í Amsterdam og losum okkur svo við restina.
Hugsar sig um
Rauða Hverfið væri reyndar góð viðbót í höllina mína...
Það yrði nú hræðilegt ef flóðvarnargarðar Hollands myndu allt í einu bresta...
Já segðu, og Rauða Hverfið komið undir flot áður en við höfum tekið það. Ég sé að þessar aðgerðir mega ekki bíða stundinni lengur! Leggur drög að risastórri skóflu til þess að skófla upp Rauða Hverfinu
Hvað með hið fagra Arizona? Ég væri náttúrulega kjörinn ríkisstjóri þess ágæta fylkis! Baunar úr sexhleypunum við fætur óheppins hjáfaranda og skipar honum að dansa Jiddíha! Íhaaa! Dansaði maður, dansaðu! Hlær vitfirrtum hlátri Fær leið á aumingjans manninum og skýtur af honum axlarböndin og beltið svo allt fer niður um hann Skýtur loks af honum hattinn og ríður sína leið
Stígur inn úr arininum
Komið sælir herramenn.
Kyndir betur í vindli konungsins og blandar sér drykk á barnum
Nágranna ríkin hafa árangurslaust rýnt í fjölmiðla okkar í leit að vísbendingum um útþesnlustefna Baggalútíu. Þeir fáu fáráðlingar úr þessum daunillu sveitahéruðum sem dirfast senda inn fyrirspurnir, eru settir í hringleikahús bjúrókratíunnar sem Hæstvirtur Forseti kom á laggirnar.
Svo má ekki gleyma Aðgerð "Servíettu Söfnun". Hún er langt komin í þrepi 4
Bryður brennisteinsmola
Fær sér koníakssopa
Hvernig eru þjónarnir að haga sér?
Já segðu, og Rauða Hverfið komið undir flot áður en við höfum tekið það. Ég sé að þessar aðgerðir mega ekki bíða stundinni lengur! Leggur drög að risastórri skóflu til þess að skófla upp Rauða Hverfinu
Vér gætum líka mölbrotið hverfið, flutt hingað og fengið púsluspilara til að setja það saman. Hummar

Hafa kannski orðið á mistök og einhver flutt vitlaust hverfi úr vitlausu landi?