opnar augun og líður alveg unaðslega vel, sér Tígra um sig og brosir makindalegaGóðan og blessaðan daginn, mikið er góður ilmur hér.
opnar augun og líður alveg unaðslega vel, sér Tígra um sig og brosir makindalegaGóðan og blessaðan daginn, mikið er góður ilmur hér.
Góðan daginn fagra fljóð.
Vona að þú hafir sofið vel.
Knúsar Dulu
opnar augun og líður alveg unaðslega vel, sér Tígra um sig og brosir makindalegaGóðan og blessaðan daginn, mikið er góður ilmur hér.
Góðan daginn fagra fljóð.
Vona að þú hafir sofið vel.
Knúsar Dulu
Gefur frá sér vellíðunarstunu og gefur Tígra gott knús Já takk fyrir ég svaf einsog rotaður selursér að strax er komið hlaðborð og finnur hvað hún er svöng Namm namm, eigum við að fá okkur eitthvað gott að snæða Tígri minnLjómar upp
Já mín kæra, það skulum við gera.
Nú er tími til að næra sig.
Stendur upp og teygir sig vel og lengi
Þá er það hlaðborðið.
Skokkar fram í eldhús og fær sér hangikjet, flatbrauð, harðfisk, smér og drekkur ískalda mjólk með
Svona á lífið að vera.
Góðir vinir á frábærum stað með allar heimsins nautnir innan seilingar.
Stynur af vellíðan og stríkur rykkorn úr öðru auganu
Vefur um sig laki og trítlar á eftir Tígra inní eldhús og knúsar svo gestgjafann og rafmælisstrákinn vel og lengi fyrir frábærar móttökur Hvernig er það er svo ekki skinny dipping eftir matRoðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið Fær sér morgunverð og hendist svo í heita pottinn til að ná úr sér morgunstirðleikanumGefur frá sér vellíðunarstunu
Ha... hva? Roðnar skinny... hvað? Sko laugin er opin ef þú meinar það, ha. Knúsar Dulu á móti Gerið þið svo vel annars og fáið ykkur morgunhressingu. Og ef fólk vill ekki fara í sund þá er hressileg gönguferð um nágrennið líka tilvalin til að fá líf í kroppinn.
Jæja, kæru vinir. Látið bara eins og þið séuð heima hjá ykkur. Ég ætla að skokka einn hring, fá mér svo sundsprett og síðan ætla ég að renna til hans Rangars á Brimslæk og fá meira af þessari einstöku gæðamysu sem hann kom með í gær.Gefur frá sér vellíðunarstunu
Festir 10 kílóa lóð á ökklana og fer að skokka
Skokkar með Andþóri
Alltaf gott að fá félagsskap.
Tekur myndaseríu af manninum sem er á harðahlaupum undan tígrisdýri.
Hendir gærunum úr tjaldinu
Er ekki boðið upp á morgunmat hérna?
Teygir á öllu því helsta
Fer í nærbrækur
Festir 10 kílóa lóð á ökklana og fer að skokka
Skokkar með Andþóri
Alltaf gott að fá félagsskap.
Tekur myndaseríu af manninum sem er á harðahlaupum undan tígrisdýri.
Einvhern vegin verður að koma manninum áfram með þessi lóð á löppunum.
Glottir kvikindislega og heldur áfram að urra fyrir aftan Andþór og hvetja hann áfram
Vaknar, fer á fætur og fær sér morgunverð Kærar þakkir fyrir mig. Drífur sig út á Ýsufjarðarflugvöll til að taka flugið heim
Jæja, gott fólk, þá er strandfararskipið tilbúið til brottfarar og við skulum öll ganga niður að bryggju.
Gengur ofan frá Vatnehúsi og niður að bryggju þar sem strandfararskipið bíður og Skapti við landganginn tilbúinn að aðstoða. Fólkið kemur í halarófu á eftir og gengur um borð. Hann kveður alla með handabandi:
Útvarpsstjóra, Regínu, Önnu Pönnu, Þarfagreini, Starra, Skabba Skrumara, Limbra, Krossgötu, Andþór, Billa bilaða, Aulann, B. Ewing, Golíat, Grýtu, Vladimir Fuckov, Tigra, Litla Laufblaðið, Jarma, Tigru, Ríkisarfann (með reiðhjólið), Herbjörn Hafralóns, Huxa, Upprifin, Dulu, blóðugt, Græneygðaogmyndarlega og Albin
Verið sæl, kæru vinir og þakka ykkur fyrir frábæra heimsókn. Það er búið að taka frá kojur fyrir ykkur öll því þið eigið nætursiglingu fyrir höndum. Verið alltaf velkomin aftur til Ýsufjarðar og munið að það er alltaf rúm fyrir ykkur í Vatnehúsi. Þið eruð búin að gefa mér bezta rafmælisdag sem ég hef nokkurn tíma átt.
Skapti leysir landfestar og skipið siglir á brott hann veifar vinum sínum klökkur og gengur síðan einn upp brekkuna að Vantehúsi, bænum sem pabbi byggði og þar sem mamma undi bezt.
Vinkar Sundlaugi
Nú getum við haldið áfram. Ljómar upp.
Er ekki bjór bestur við sjóveiki? Á einhver bjór?
Veifar Sundlaugi með söknuði og þakkar honum fyrir dásamlegan dag. Hlakkar til að mæta aftur til Ýsufjarðar næsta rafmælisdag eða jafnvel fyrr.
Hva! Er ekki flogið? Ég verð bara sjóveikur um borð í þessum dalli. Ælir á bryggjuna
Takk fyrir mig Sundlaugur... heiðursmaður... Tárast