Býður Ragnari í nefið
Þakkar fyrir sig
Megið þið njóta vel þessar heimsóknar hingað til Ýsufjarðar og að lokum ætla ég að fara með gamlan húsgang frá Ýsufirði fyrir ykkur:
Á Ýsufirði er alltaf gott
enginn má þar kvarta.
Fáir hafa flutt á brott
úr firðinum unaðsbjarta.
Veifar í kveðjuskyni
Dregur upp pelannMá ekki bjóða oddvitanum tár?
Hvernig voru svo heimtur í haust Ragnar? Já og vigtin, voru dilkar vænir?
Veltir því fyrir sér hvað húsgangurinn sem allir viðrast kunna sé gamall.
Mikið óskaplega er gaman að sjá þetta allt saman með eigin augum.
Ljómar upp
Ég þakka fyrir snýr sér að Sundlaugi Þetta eru eðalfélagar sem þú átt, Laugi. Sýpur á
Jú, heimtur voru góðar og fallþungi betri en undfarið. Við bændur getum ekki kvartað frekar en aðrir á Ýsufirði.
Gengur heim að bæ og veifar Regínu með blik í auga
Veifar
Snýr sér aftur að Ragnari
Hvernig var kornuppskera í haust? Þið ræktið korn hérna er það ekki?
áttar sig á að Ragnar er farinn og snýr spurningunni því til Sundlaugs
Jú, Útvarpsstjóri hér er kornrækt með miklum blóma, hér á Ýsufirði vex allt nema illgresi.
Við ökum nú aðeins hérna áfram að bænum Strönd þar sem Sæmundur og Hafdís búa. Þau er barnmörg en þekktust barna þeirra eru nú garpurinn og kvennljóminn Ægir, sem hefur getið börn við fleiri konum en nokkur annar í sýslunni og svo ólíkindatólið hún Berglind.
En þá snúum við við og ökum aftur inn í bæ og dembum okkur í sund. Þeir sem ekki komu með sundföt geta leigt þau hjá sundlaugarverðinum, en það er enginn önnur en hún Berglind frá Strönd.
Ekur inn í bæ, rennir að sundlauginni og ljómar upp.
Slæst í hópinn og virðir fyrir sér dásemdir samfélagsins.
Gott að fá fleiri í hópinn. Nú drífum við okkur í sturtu og svo í sund. Aðgangseyrir og sundfata- og handklæðaleiga er í boði Ungmennafélagsins.
Bætist í hópinn og skoðar staðinn af áhuga
Dettur af himnum ofan og lendir með skelli við hlið Sunlaugs
Ég er að husa um að sleppa sundferðinni í þetta sinn en fylgist bara með af hliðarlínunni.
Stendur upp og skokkar við hlið Sundlaugs
Birtist á sundlaugarbakkanum í gömlu röndóttu skýlunni, með ístruna inni og kassann þanninn - andstutturHva, enginn heitur pottur?
Það er bara allt í lagi með sundbolina hérna.
Dembir sér útí og syndir svanasund svo varaliturinn skemmist ekki.
Nei, Golíat minn, hér syndum við. Laugin er nú heilar 25°c.
Kemur þú í kapp?
Dáist að því hvað Regína er flott í sundbol
Sest inn í gufubaðið með ákavítisflösku og nokkur staup Jæja, hver vill skála?