Já, góð spurning, Krossgata. Við ættum kannske bara að líta inn í Kaupfélagsbúðina. Þar eru einmitt seld póstkort, lyklakippur, merktir pennar og fleiri minjagripir. Þar er líka kaffihúsið okkar, ef einhvern skyldi þyrsta eða svengja í flatkökur með hangiketi.
Gengur inn í búiðna með hópinn og heilsar Héðni kaupfélagsstjóra
Þetta er svo hann Kaupa-HéðinnGlottir eins og fífl. Héðinn minn, hér er ég kominn með hóp félaga minna í skoðunarferð á heimaslóðir mínar.
Já, þetta er nú Kaupfélagið á Ýsufirði. Hér kemur fólk til að kaupa nauðsynjar og leggja inn afurðir. Hér er það nú líka helzt sem fólk hittist og ræðir saman, utan ungmennafélagsstarfsins að sjálfsögðu.
Verður litið út um gluggann. Hér kemur svo Hafdís á Strönd á reiðhjólinu sínu.
Hafdís leggur frá sér hjólið og gengur inn í búðina og afhendir Kaupa-Héðni lista með vörum sem hana vanhagar um.
Blessuð, Hafdís mín, þetta eru nú félagar mínir á ferð með mér.
Hópurinn dreifir sér um búðina og einhverjir nota tækifærið til að komast á snyrtinguna.
Leitar að sundskýludeildinni
Treður Starra ofan í skúffu
Setur Andþór og Starra ofan í kassa og sest ofan á kassan
Verður illa brugðið við lætin ofan í kassanum
Starri nei skamm! Það má ekki koma við þetta! Andþór á!
Setur plástur á pípíið hans Andþórs
Fær sér kakó og vöfflu á kaffihúsinu Hrikalega góð vaffla atarna! Stekkur hæð sína
Kaupir hvítbotnaða gúmmískó á 99 krónur í Kaupfélaginu
Leitar að búrekstrardeildinni
Kemur inn og klappar saman lófunum
Jæja gott fólk, þá skulum við halda ferðinni áfram. Við skulum ganga hérna yfir Torgið. Þar býður okkar hópferðabifreið sem mun aka okkur aðeins um nágrennið.
Gengur út með fólkið í halarófu á eftir sér. Mætir kand. fíl. Engilbjarti Sóldal á leiðinni. Kinkar kolli til Engilbjarts sem verðast upp við að sjá svo stóran hóp af, að því er virðist, heimsborgunum og reynir að vekja athygli þeirra á sjálfum sér.
Tekur myndaseríu af Engilbjarti að sperra sigMissir næstum því af hópferðabílnum fyrir vikið
Sest í við glugga í hópferðabifreiðinni
Vísar fólki til sætis í hópferðabílnum, sezt síðan sjálfur í fararstjórastólinn og tekur upp hljóðnemann.
Þá ökum við nú út úr bænum eftir Pollastíg og hér til vinstri er nú hús sem er til sölu ef Andþór skyldi enn hafa áhuga.
Svo beygjum við hérna til vinstri og inn í dal.
Ekur um stund.
Hér sjáið þið nú prestssetrið Kirkjutjörn, þarna er kirkjan bendir á lágreista hvímálaða kirkju og þarna er séra Bjartur sjálfur.
Veifar til séra Guðbjarts þar sem hann er að dytta að glugga á prestssetrinu.
En nú förum við aðeins til baka, beygjum hérna til vinstri og ökum inn eftir firðinum. Hér í fjarðarbotni rennur svo Þvottá út í Ýsufjörð og á bænum hérna fyrir ofan býr sómakarlinn Eiríkur á Þvottá.
Nú vegurinn hérna til vinstri liggur svo yfir Vatnsskarð til Sóldals en við höldum hinsvegar áfram hér eftir firðinum norðanverðum og förum hér um hlað á Brimslæk þar sem höfðingjarnir Ragnar og Sigríður búa. Ragnar er reyndar oddviti hreppsnefndar, alkunnur hestamaður og auðugastur bænda í Ýsufirði að búfénaði.
Lætur stöva bifreiðina þegar hann sér Ragnar sjálfan koma niður á veg. Ragnar lítur inn og kastar kveðju og á fólkið og býður það velkomið.