Ekki gleyma hvað ég er fær á internetið. Ég hef ýmsar leiðir til að komast að ýmsu.
Í alvörunni, krakkar, erum þið virkilega öll Glúmur?
Þá langar mig að vita Jarmi, er ég einfaldur eða margfaldur?
Ég hef það fyrir fasta reglu að kjafta engu um alla.
Auk þess hef ég ekki tekið þig fyrir í njósn.
Það hefur alltaf verið erfitt fyrir nýjar merar að vera settar inn í stóðið í Hrossadal. Þær eru lagðar einelti til að byrja með af gömlum skapvondum hryssum sem bæði bíta og slá. Er þetta virkilega eins hér á Baggalút? Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann Í stóðinu er einn graðhestur sem öllu ræður, geldingarnir eru hafðir í annarri girðingu, ég vona að það sé a.m.k. ekki eins hér Brestur í óstöðvandi grát
Huxi, Andþór og Óskar Wilde eru furðulegar undantekningar! Og hvað er það þrír af hversu mörgum? Ég er ekki að segja að við eigum ekki að hleypa nýliðum inn. Bara láta þá hafa meira fyrir vegabréfinu!
Það hefur alltaf verið erfitt fyrir nýjar merar að vera settar inn í stóðið í Hrossadal. Þær eru lagðar einelti til að byrja með af gömlum skapvondum hryssum sem bæði bíta og slá. Er þetta virkilega eins hér á Baggalút? Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann Í stóðinu er einn graðhestur sem öllu ræður, geldingarnir eru hafðir í annarri girðingu, ég vona að það sé a.m.k. ekki eins hér Brestur í óstöðvandi grát
Elsku Hestgerður mín, við höfum lent í svo mörgum leiðindar, óþarfa og vitleysinga nýliðum upp á síðkastið að ég er bara að vera varkár.
Ég hef það fyrir fasta reglu að kjafta engu um alla.
Auk þess hef ég ekki tekið þig fyrir í njósn.
Þá get ég sagt þér það svo þú þurfir ekki að leggja á þig rannsóknavinnu. Ég er eins einfaldur og nokkur Gestapói getur verið. Ég hef aldrei skráð mig inn undir öðru nafni en mínu - eina. Ég þekki engan Gestapóa undir öðru nafni en þeim sem þeir ganga undir hér.
Mér er algerlega óskiljanleg þessi aukasjálfaárátta. Þeir sem verst eru haldnir af henni ættu að leita sér lækninga. Kannski á Vímus meðal sem virkar.
Það hefur alltaf verið erfitt fyrir nýjar merar að vera settar inn í stóðið í Hrossadal. Þær eru lagðar einelti til að byrja með af gömlum skapvondum hryssum sem bæði bíta og slá. Er þetta virkilega eins hér á Baggalút? Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann Í stóðinu er einn graðhestur sem öllu ræður, geldingarnir eru hafðir í annarri girðingu, ég vona að það sé a.m.k. ekki eins hér Brestur í óstöðvandi grát
Hah, við erum nú nokkrir allgraðir hér á bæ Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Veriði góð við hana Hrossgerði. Mér finnst hún lofa góðu.
En ertu búin að fara í innflytjendahliðið væna mín. Það er bara partur af prógramminu, óumflýjanlegt.
En einn nýliðinn undir mitt embætti?
Ég fer að verða valdameiri en ég bjóst við.
Áttar sig á að völdum fylgir ábyrgð
Laumast út bakdyramegin
Velkominn það er alltaf gaman hjá mér þegar merar bætast í stóðið.
Þetta er meira og minna sama pakkið sem gengur undir mismunandi nöfnum. En sama er mér, svo lengi sem þau ganga ekki yfir strikið í leiðindum.
Heyr, heyr. Leitar að strikum til að hoppa yfir
Velkomin Hrossa. Ef þú heldur þig innan velsæmismarka, (sem eru frekar mismunandi eftir þráðum), og vandar þig við stafsetninguna, málfræðina, skáldskapinn og bragfræðina, þá gæti vel huxast að þú finnir hér framtíðar beitarhólf.
Annars.. Glottir
Mér lýst vel á gripinn. Vertu velkomin Hrossa. Láttu fara vel um þig.
Gefur Hrossu sælkerahey
Verið ekki svona ofboðslega jákvæð. Mér sýnist þessi meri vera óttaleg trunta.