Þá erum við komnir í parísar jóla-feeling. Þið eruð æðislegir.
Gleðileg jól frá París
Andrés og maki sem er jafn hrifinn ;-)
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Hvaða merkjafans er þetta!
Missir sig í spurn ???????
Ég held að þetta hljóti að vera einhver aumingjans villuráfandi sál sem telur sig vera í beinu sambandi við guðina (ritstjórn) í gegnum Gestapó. Þótt hann hafi auðvitað ekki alrangt fyrir sér þá er greinilegt að maðurinn þjáist af slæmri raunheimavillu, bæði notar hann orð sem teljast til svokallaðrar útlensku en eins og allir vita þá er íslenska eina málið sem er hægt að gera sig skiljanlegan á og svo telur hann sig vera staðsettan í París, ætli hann sé ekki hoppandi á öðrum fæti einhvers staðar.
Þessi kolranga greinarmerkjanotkun er svo náttúrulega eitt af einkennum vaðandi raunheimavillu á lokastigi. Ég vona að blessaður maðurinn nái að vinna sig út úr þessu fyrir jól svo það þurfi ekki að koma til innlagnar á Ofskynjunarmeðferðarstofnun.