Nú er verið að ræða það að halda teiti bráðum. Eitthvað hefur verið rætt um Þarfaþing en mér finnst óþarfi að láta Þarfagreini alltaf þurfa að halda teiti. Vil ég samt endilega að eitthverskonar hittingur verði haldinn, hvar veit ég ekki. Þar sem ég bý hjá pabba þá er ekki víst hvort ég geti haldið neitt, ég get þó sagt honum að halda sig úti eina kvöldstund. En ég veit að mörg ykkar eru einhleyp og búa ein... hví ekki halda eitthvað? Ef ekki... þá reyni ég að koma kallinum fyrir hjá ömmu eða leigi hótelherbergi handa honum og sendi eina tælenska þangað...
En spurningin er.... hver er tilbúin/n að halda þetta?!?!
Sjá http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?t=9443 þar sem svarið við spurningu yðar er komið fram ef vjer skiljum þann þráð rjett.
Já... mig langaði bara að fá staðsetninguna á hreint Vlad... ekki hvort e-h yrði haldið. Finnst þetta ganga svo ansi hægt.
Það kemur fram á blaðsíðu 3 í þræðinum sem Vladimir nefndi að það verður haldin gleði hjá Dulu sem býr að vísu úti í rassgati en Gestapóar fara nú ekkert að setja það fyrir sig ef ég þekki ykkur rétt. Það eina sem er verið að deila um á þræðinum er tímasetningin en það VERÐUR partý!
Hvar nákvæmlega er títtnefnt rassgat það er Dula byggir? Fyrir mér er allt höfuðborgarsvæðið ein stór görn.
Hvar nákvæmlega er títtnefnt rassgat það er Dula byggir? Fyrir mér er allt höfuðborgarsvæðið ein stór görn.
Mig grunar að það sé ekki mjög langt frá Borgarfirði.
Eina rassgatið í nágrenni Borgarfjarðar eru mýrarnar. Og svo borgarnes sjálft, sjálfur hringvöðvi rassgatsins.
Skyldi ganga rúta þangað? Starir þegjandi út í loftið
Hún gæti gengið þangað en varla ekið því slíkt er mjög erfitt í mýri.
Ég gæti náttúrulega haldið þetta partý þetta er ekki nema fimm til tíu tíma akstur frá REK, fer soltið eftir veðri en nóg pláss.Starir þegjandi út í loftið
Sagði einhver rúta ?
Ég get ómögulega lofað nokkru fyrirfram.
Vjer teljum það betri hugmynd að nota þyrlu og leggjum til að rætt verði formlega við Hvæsa vegna þess máls. Rútur henta afar illa í mýri einhversstaðar úti í rassgati.
Vjer teljum það betri hugmynd að nota þyrlu og leggjum til að rætt verði formlega við Hvæsa vegna þess máls. Rútur henta afar illa í mýri einhversstaðar úti í rassgati.
Ég held að Hvæsi henti almennt illa úti í rassgati.
Já. Stuð. Partí. Ég er alltaf til.
Jég er til! Straujar böndin
Rassgat here we comeGlottir eins og fífl