Ég geng undir nafninu SveinnP í undirheimum alnetsins þannig að það mun vera eina nafn mitt sem að þið munið þekkja. Ég vona að ég geti átt skemmtilegar stundir við lestur og svörun á þessu spjallborði.
Það fer nú mest eftir þér sjálfum væni minn. Þú virðist allavega sæmilegur í stafsetningu. Varðandi málfar, þá mættti sleppa þessu að þarna.
Ekki slæmt.
Ég geng undir nafninu SveinnP í undirheimum alnetsins þannig að það mun vera eina nafn mitt sem að þið munið þekkja. Ég vona að ég geti átt skemmtilegar stundir við lestur og svörun á þessu spjallborði.
Allt of mörg að. Ertu kannski líka einn af þeim sem ert alltaf að gera eitthvað í staðinn fyrir að gera einfaldlega eitthvað? Var kannski sagt þér eitthvað um daginn? Leitarðu kannski af einhverju? Segirðu víst að í staðinn fyrir fyrst eða fyrst að?
Ég vona að þetta séu nægilega fyrirbyggjandi leiðréttingar, þú virðist vera af þeirri kynslóð sem treður ofangreindum villum í allt sem hún skrifar.
Hunskastu svo í innflytjendahliðið svo við getum leikið okkur almennilega með þig! Hendir poppi í nýliðann
Kjellinn bara mættur.
Þetta á eftir að enda illa.
Ég vona þetta endi nú ekki mjög illa. En núna verður einhver hjálpsamlegur notandi að benda mér á leiðina til innflytjendahliðsins.
Bendir á blóðslóð... í öðrum enda slóðinnar er innflytjendahliðið og í hinum enda er paradís...
Þú ert mikill heiðursmaður Skabbi, það verður ekki tekið af þér.
Kjellinn bara mættur.
Þetta á eftir að enda illa.
Klórar sér í toppstykkinu Er samt ekki í lagi með þetta "að" hjá ljúflingnum honum Jarma?
Kjellinn bara mættur.
Þetta á eftir að enda illa.
Klórar sér í toppstykkinu Er samt ekki í lagi með þetta "að" hjá ljúflingnum honum Jarma?
Það er yfirleitt allt í lagi með hann Jarma.
Sammála.
Er það rokið sem feykir öllum þessum nýliðum hinggað inn? Sækir nýliðasópinn
Líklega kuldinn og rokið já.
Þeir sem ekki fjúka hingað inn, skríða inn í hlýjuna.
Ég er samt alveg rosa fínn strákur. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Jájá ég efast ekki um það. Þú hefur litið út fyrir að vera efnilegur.
Þeir fjúka líka yfirleitt fljótlega út aftur, þeir sem ekki eiga hér heima.
Ef þú sleppur framhjá sópnum þá áttu möguleika. Byrjar að sópa af miklum móð
Ég bara komin með myndStyður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Og líka svona sætur!
Ljómar upp
Ég bara komin með myndStyður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Og svona fallega blár líka, til hamingju! xT