Jeg er hér nýgræðingur undir viðurnefninu Zion deWitt og er Gestapói dulbúin sem heimavinnandi, þreytt, tveggja barna móðir í vesturbænum. Í slíku leynimakki er mjer þarft af illri nauðsyn að fela sem best jeg má haltrið sem þó einkennir sannan gestapóa, ásamt einglirninu. Þó hef jeg að sönnu blandast umhverfi mínu og kann nú að reyta hár mitt af þvílíkri snilli sem eingöngu raunverulegar húsmæður og þrautþjálfaðir leyniútsendarar geta tamið sjer.
Ekki hef ég mikinn gaum gefið þessum þræði í fortíðinni en hef nú ákveðið að gerast meðlimur. En þó þarf jeg nú að sinna skyldum mínum og huga að börnunum tveimur og ekki síður eiginmanninum sem hlutverki mínu fylgir, svo ég kveð yður að sinni.
kv. Zion deWitt,
Annar óvinur bókstafs hins illa ? Hrökklast aftur á bak og hrasar við En hvurslags nafn er Zion ? Ertu Zionisti ?
Það verður vart þverfótað fyrir nýgræðingnum hérna. Klórar sér í höfðinu Úpps, þetta hefði ég ekki átt að gera, nú detta mér allar dauðar lýs úr höfði. Hrökklast aftur á bak og hrasar við
ja nafn það hljómar ekki ólíkt mínu gefna nafni, svo hefur það virkað vel í netheimum fram til þessa. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið finnst yður það óheyrilega afkáralegt?
Nafnið er ekki verra en hvað annað. Betra en slatti af nöfnum hér. Farðu nú að haska þér í Innflytjendahliðið.
Velkomin Sæunn. Það er alltaf frábært að fá fleira kvenfólk. Verður spennandi að sjá hvaða litur leynist undir gráa apanum.
Takk allir fyrir hlýlegar mótökur.
Jú jeg er kvenmaður en liturinn verður þó bara að koma í ljós þar sem engar mynir eru til í myndasafni.
En Jarmi, segðu mér eitt. Ertu svona góður giskari eða þekkiru mig einhversstaðar frá með nafni?
Velkomin frú Sæunn. Skrif þín gefa til kynna að þú gætir vel blómstrað á þessu vefsvæði (þó ég mæli með stórum stafi í upphafi setningar, sjá færslu yfir ofan). Megir þú njóta þinna stunda meðal okkar.
Takk fyrir það! Jeg hef tekið eftir þessum littlastafskvilla mínum og reyni að vinna bót í máli.
Takk allir fyrir hlýlegar mótökur.
Jú jeg er kvenmaður en liturinn verður þó bara að koma í ljós þar sem engar mynir eru til í myndasafni.
En Jarmi, segðu mér eitt. Ertu svona góður giskari eða þekkiru mig einhversstaðar frá með nafni?
Það stendur nú bara Sæunn þarna í nafninu þínu. Skrifað reyndar á furðulegan útlenskan hátt. Svona svipað og ef ég reyndi að fela mig bak við nafnið 'Yarme'. Fólk væri fljótt að sjá í gegnum það.
Annars er ég á móti dulnefnum, vil bara að fólk komi fram undir sínu rétta nafni, eins og næstum allir hér á Gestapó gera.
Sama gildir með myndirnar, fólk á bara að skila inn löggiltri passamynd og þá eru allir sáttir.
Jú jú svona einsog þú Hr. Iggy Pop.
Jú jú svona einsog þú Hr. Iggy Pop.
Iggy Pop er léleg eftirherma af honum Jarma okkar, skilið ?
skiliðber hönd að deri
Gott. Í gólfið með þig og taktu 30 armbeygjur. Prontó! Bendir á gólfið og byrjar að telja
Já, menn eru búnir að vera að segja mér að það sé maður í útlandinu stóra sem sé alveg sláandi líkur mér. Sá heitir jú Iggy Pop (sem er sérlega mikið dulnefni held ég barasta og því ömurlegt). Þessi maður er meira og minna ber að ofan og lætur fólk missa matarlystina. Við erum afspyrnu líkir greinilega!
Hvaða tegund af beri er hann að ofan ? Hrökklast afturábak og hrasar við