Þessi þráður er tileinkaður öllum þeim aragrúa Gestapóa sem hafa á einhverjum tímapunkti á einhvern hátt tilkynnt með einum eða öðrum hætti að þeir ætli sér að yfirgefa Gestapó. Þetta eru mikilvægar sögulegar upplýsingar og stundum góð hugmynd að vista afrit af þeim ef viðkomandi skyldi taka upp á því að smábaggast með öllu. Svo getur verið gamað að láta fylgja auka upplýsingar með, sérstaklega varðandi hvenær menn voru síðast á ferli
Ætli við byrjum ekki á þeim fyrsta sem ég man eftir að hafa fallið í þessa gryfju.
Gestapói: Glúmur
Dagsetning útfarar: 10. október 2003
Glúmur Angan, lést við blóðtöku að heimili sínu föstudaginn 10. október. Talið er að Glúmur hafi sofnað við blóðtökuna, sem hann framkvæmdi sjálfur í þeirri von um að endurvinna "ÚltraKóbalt".
Glúmur lætur eftir sig langan bálk fásinnu og þrettán uppkomnar ranghugmyndir. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á Sarpinn og F.Á.U.Á.U.Ú.G.
http://baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?t=719
Síðast á ferli: 2. nóvember 2007
Og þá er viðeigandi að minnast nýjasta útfarans.
Gestapói: Offari
Dagsetning útfarar: 12. nóvember 2007
Offari Kveður.
bless.
http://baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=1768&n=6228
Síðast á ferli: 14. nóvember 2007 17:08
Þetta var nú mikið drama:
Gestapói: Jóakim Aðalönd
Dagsetning útfarar: 5. desember 2006
Ég kveð alla sem stytt hafa mér stundir á þessum vettvangi á sl. 3 árum með söknuði. Megi lánið leika við ykkur öll.
Kjagar út af sviðinu vinstra megin og lokar ofurvarlega á eftir sér...
http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=344&n=5297
Síðast á ferli: 14/11/07 00:07
Oooog við höfum fyrstu tvennuna.
Gestapói: Jóakim Aðalönd
Dagsetning útfarar: 1. apríl 2005 (spurning hvort þetta teljist með)
Ég er hættur
Já, þetta er orðið gott. Bezt að fara að snúa sér að einhverju öðru.
Kæru Baggalýtingar. Ég ætla að yfirgefa Gestapó. Ástæðan er margþætt, t.d. hefur heilsu minni hrakað og ég þarf að eyða sífellt meiri tíma á daginn í eitthvað annað og því fara kvöldin og jafnvel næturnar í þetta og svefnleysi bætir ekki heilsuna.
Ég sný mér kannski að fluguhnýtingu eða nautaati. Það mun tíminn leiða í ljós. Ég er búinn að hafa mikla ánægju af því að rita hér á skjáinn og kynnst (sumum betur en öðrum) mörgum skemmtilegum persónum og leikendum.
Ég kann ykkur öllum þakkir fyrir samveruna þetta eina og hálfa ár sem ég hef verið hér. Ég elska ykkur öll, ég veit þið elskið mig.
Bless, elskurnar.
Jóakim
Vætir fingurinn og drepur á kertinu, stingur fjaðrapennanum í blekbyttuna, setur upp pípuhattinn og lokar á eftir sér...
http://baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=344&n=2416
Síðast á ferli: 14. nóvember 2007 00:07
Var ekki Offari búinn að hóta að hætta einhvertíman áður?
Jú eitthvað rámar mig í það. Sömuleiðis finnst mér eins og Skabbi hafi hætt og hætt við að hætta og kannski líka hætt við að hætta við að hætta. Mig gæti þó misminnt.
Var ekki Offari búinn að hóta að hætta einhvertíman áður?
Mig minnir að hann hafi hótað brotthvarfi í fyrravetur.
Ég hætti reglulega...
Hérna hætti ég... átti jafnvel að vera endanlegt:
http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=90&n=1725
Já bíddu hætti Limbri ekki einhvertíman?
Það er hætt við því... Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Hérna hætti ég... átti jafnvel að vera endanlegt:
http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=90&n=1725
Gestapói: Skabbi Skrumari
Kveðja
Ég er yfirleitt töluvert dramatískur og því við hæfi að kveðja Lútinn á óvæntan og dramatískan hátt, fyrsta útgáfan á þessum sálmi var þó mun dramatískari (og töluvert lengri), en mér þótti þetta þó við hæfi. Til að fyrirbyggja allan misskilning, þá er ég ekki hættur endanlega, heldur í fríi frá Gestapó og mun væntanlega einhvern tíma í nánustu framtíð mæta aftur.
Kveð ég nú því kominn er víst kuldi nætur
búinn er minn Baggalútur
bundinn fastur rembingshnútur
Kvæði mörg ég kvað hér oft og klámið líka
gantast oft og gátt upp ljúka
gekk ég vegi laumupúka
Þræði spunnið þrautir leyst í þamb’að leita
Skabbi fann oft skrumið nýta
skálaði í Ákavíta
Góð var stund að gamnast hér við góða leiki
búinn er mín baggasýki
birtist kannsk’í vofulíki
Víst er svo að vini mína verð að kveðja
lýkur núna laga smiðja
lokin er mín vísnahriðja
Bless elsku dúllurnar mínar og...
Skál
http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=90&n=1725
Síðast á ferli: stöðugt

Það skal tekið fram að þetta feitletraða var sett inn eftir á til að minnka dramað sem fór af stað... ég hlýt að hafa verið rosalega vinsæll á þessum tíma horfir á fortíðina í hyllingum og bíður eftir að einhver sparki sig út úr þessu móki
Ahh, fortíðin.... þegar ég var fallegur og snjall - núna er ég bara gleyminn.