Auðvitað unnu okkar menn. Enda langbestir.
Alveg fyrirsjeð úrslit þó vjer höfum kosið þá til öryggis Ljómar upp.
Mínir menn vinna alltaf.
Ljómar upp
Þarf nokkuð að haldaþessu áfram erida ekki bara búið?
Þið verðið af afsaka en mér fannst lögin í kvöld ekkert sérstök. Ekkert þeirra skar sig úr. Forðar sér á hlaupum
Ég verð að vera sammála Herbirni, en mikið assgoti voru okkar menn fínir í tauinu.
Sammála Úbba. Magnús hefði getað búið til betra lag fyrir þá að fremja.
Sparkar í ímyndaðan Magnús
Mínir menn vinna samt alltaf.
Ljómar aftur upp
Lagið skiptir ekki máli þeir eru langbestir.
Oss fannst lagið fínt en spurning hvernig það passar í lágmenningarkeppni á borð við hið sk. 'Eurovision'. Hluti úr laginu fannst oss hinsvegar minna nokkuð á hluta úr öðru lagi eftir Magnús Eiríksson þar sem þessi orð koma fyrir: Og úr því að þeir krossfestu þig, Kristur,/ hvað gera þeir við ræfil eins og mig ?.
Þeir voru flottir... lagið var svona lala... lala... lala... ♪♪ og tæplega það...
Hvaða menn? Hvaða úrslit? Hvaða lag?
Qatar SC geri ég ráð fyrir. Eða eitthvað.
Flottir og gott lag en ekki Júgróvisionvænt. Kústurinn snilld.
Varst þú ekki einmitt á hinum enda kústsins? Glottir eins og fífl
Mér fannst kústurinn toppa allt. Ég beið hins vegar alltaf eftir sólóinu sem kom aldrei. Svo fannst mér leitt að sjá kústistann fipast agnarögn þegar lagið var endurtekið í lokin, en við fyrirgefum það nú er það ekki?
Flottir og gott lag en ekki Júgróvisionvænt. Kústurinn snilld.
Varst þú ekki einmitt á hinum enda kústsins? Glottir eins og fífl
Var hann að sópa lopahnoðra?