Sælir kæru Gestapóar!
Ég heiti Bebe Ewing og var rétt í þessu að koma í heiminn eftir laaaaanga bið!
Ég er 14 og hálf mörk (3.675 gr) og 50 cm, stór og myndarlegur strákur. Mömmu minni (og pabba) heilsast vel og eru alveg í skýjunum yfir mér (enda ekki skrítið þegar um er að ræða hreinræktaðan Gestapóa í báðar ættir!).
Ég hlakka til að hitta allt skrítna og skemmtilega frændfólkið mitt á Gestapó, þetta verður góður staður til að alast upp á!
Æi þú ert bestur!
Hlakka til að sjá þig!
Er með gjafir í stöflum!
Jidúddemía allimalli, þú ert mesta krútt í heimi og verti velkominn litli kútur í þessa veröld. Knús og kram frá Dulu frænku Gefur frá sér vellíðunarstunu
til hamingju Norn og Bjúving. og velkominn Bebe, en hvernig ertu á litinn?
Oooooo en dásamlegt, velkominn í heiminn kæri Bebe! Knúsar Bebe svolítið og ljómar upp eins og bara stoltar „frænkur” gera
Þetta er gestapói í lagi! Hangir hér allt frá fyrsta degi! Skál!
Til lukku með þetta.
Er ekki komin tími á að kenna unganum pýþagóras og að jafna þríliðu ?
Ég óska ykkur ynnilega til hamingju með strákinn og honum til hamingju með ykkur og tilveruna en ég verð að viðurkenna að ég skellti upp úr við tilhugsunina um að blessað barnið eigi báðar ættir að rekja til Gestapó og vonandi verður það ekki misskilið þegar pakkið í raunheimum heyrir það.
Þettað er nú meiri súpan Til hamingju með Gestakróann ! Knúsar Nornu , Búbba og littla prinsin
Sæll og blessaður og velkominn í þennan heim herra minn. Og til hamingju með foreldra þína, þetta er gæðafólk sem ég óska alls hins besta.
Fólk er að velta fyrir sér hvernig þú sért á litinn en ég þykist sjá svokallað krómatískt blæbrigði af kóbaltbláum og vísnagylltum. Þá er einnig laumugrænan að finna sem og leikjarauðan. Já svei mér þá ef þú ert ekki bara allra lita kempa. En hverju öðru er svo sem við að búast með jafn vel ættaðan mann og þig. Verður spennandi að sjá hvaða litur kemur fram á einkennismyndinni. (Ég giska á tandurhvítan, samansettan úr öllum litunum.)
En nóg um það, enn og aftur til hamingju með allt heila klabbið og skál!
-
Til hamingju með hreinræktaða Gestapóan. Sendir B Ewing kenslumyndband í einkapósti
Innilegar hamingjuóskir til ykkar þriggja!
Velkominn í heiminn Bebe. Ég er Litla Laufblaðið. Uppáhalds og bestasta frænkan þín. Knúsar Bebe best því það er það sem uppáhaldsfrænkur gera
Innilegar hamingjuóskir Norn og Búbbi með afkvæmið.