Vorum við einhvertíman saman?
Fer yfir lista í höfðinu yfir mögulega kærasta sem Andþór gæti verið
Þessi þráður gæti farið að heita OPINBERI ÁSTARJÁTINGAÞRÁÐURINNBrosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ef þú kemur á árshátíðina skal ég gefa þér stórt knús í sárabætur!
þarna jukust árshátíðarkomulíkur mínar allverulega.Ljómar upp
Ég átti einu sinni kærustu sem klóraði. Algjör eðall!
Þetta heitir á vondu máli oversharing. Er föst í óþægilegri sjónrænni lúppu
Hér voru hin fleygu orð mælt, ekki fyrst og ekki síðast en þau voru mælt, mæld og léttvæg fundinn.
Ooohhh, ég hélt að albin væri að koma með upplýsingar um undirkomur á ástarvikunni í Bolungarvík. (Eða um undirkomur á uppákomunni í Bolungarvík sem var sama kvöld og síðasta árshátíð Gestapóa.) Læðist hægt og hljótt út af þræðinum
Les innlegg Billa og áttar sig skyndilega
Hvernig í dauðadrukknum djöflaskötum stendur á því að vjer sjáum fyrst núna að þessi þráður heitir ekki nákvæmlega sama nafni og hinn þráðurinn ?! Það þýðir að allt sem vjer höfum hjer sagt er á misskilningi byggt og strangt til tekið er sumt jafnvel ógilt miðað við það samhengi sem það var eða var ekki sagt í.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer Íhugar að setja inn endurskoðaða útgáfu af öllum innleggjunum hjer.
veltist um af gleði Nei Vlad minn. þú verður ð hafa þau óbreytt svo hægt sé að lesa ógleymanlega snilld þína sem þú skrifaðir ofurölvi.
Lét blekkjast Ég er viss um að Albin sé mafíósi. Kýs Albin
Ég? mafíósi? Kýs offara
veltist um af gleði Nei Vlad minn. þú verður ð hafa þau óbreytt svo hægt sé að lesa ógleymanlega snilld þína sem þú skrifaðir ofurölvi.
Ef það væri nú svo gott. Vjer höfum því miður eigi þá þægilegu afsökun að hafa verið ofurölvi, vjer vorum einungis undir lítilsháttar alkóhóláhrifum Brestur í óstöðvandi grát.
Þá geturðu bara haldið því fram að þetta hafi verið partur af leynilegu plani um að veiða óvini ríkisins í gildru. Ljómar upp
Gerir háleynilega áætlum sem miðast að því að plata Vlad í mosfellsbæ á árshátíð
Vjer erum nú þegar búnir að tilkynna mætingu vora þannig að áætlun albins misheppnast nema taka beri innlegg hans mjög bókstaflega. Eins og mál standa núna hyggjumst vjer nefnilega bara mæta á árshátíð í einum Mosfellsbæ.
PS Öll fyrri innlegg vor í þræði þessi voru sett inn í þeim tilgangi að villa um fyrir óvinum ríkisins Ljómar upp.
Það þarf ekki að taka það fram að ég til tók eigi dagsetningu, svo hugsast getur (þó það sé ekki gefið upp) að ef og þegar háleynilegar áætlanir um að plata "Vlad" í einn Mosbellsbæ til að mæta á árshátíð fara í framkvæmd, fari svo að þær verði framkvæmdar sem er ekki gefið upp hér, verði dagsetningin önnur (eða ekki) og árshátíðin önnur (eða ekki).
Þar sem þetta eru aðeins háleynileg plön get ég ekki gefið neitt upp um málið, ef það er þá til.
Skilur ekkkert hvaða þvæla þetta er
Þar eð albin hefur breytt innleggi sínu hefur negatíft óskiljanleikastig undanfarandi innleggs vors eigi sloppið við að minnka. Sjáum vjer því ástæðu til að birta upphaflegt innlegg albins og vekja um leið athygli á 3. síðasta orðinu þar, það gefur fullt tilefni til tortryggni:
Gerir háleynilega áætlum sem miðast að því að plata Vlad í mosfellsbæi á árshátíð
Steikarstig þessa þráðar fer frekar hækkandi Glottir að Vlad og Albin
Því erum alveg ósammála. Nú er hinsvegar komið upp nýtt, alvarlegt vandamál: Vjer erum búnir að gleyma hvort það var þessi þráður sem vjer hjetum í fyrrnótt að heimsækja aldrei framar. Eigi viljum vjer ósannindamaður verða og því er nauðsynlegt að fá botn í málið Fer að leita.