Það tilkynnist hjer með opinberlega að upp er komið alvarlegt vandamál er af einhverjum dularfullum ástæðum kemur alltaf upp við þær aðstæður er nú eru uppi: Tímavjel vor virkar eigi og það er stutt í árshátíð. Vjer þurfum eins og venjulega nauðsynlega að athuga hvort árshátíðin heppnist ekki örugglega vel til að staðfesta að vjer eigum að breyta tímasetningu viðburðar er árshátíðin mun líklega rekast á sje ekkert að gert. En þá bregður svo við að þetta $#*€&% skrapatól virkar eigi, það eina sem virkaði var að vjer náðum að sjá örlítið brot úr árshátíð ársins 2017 sem er afar undarlegt því Hvæsi sá einhver brot úr henni um það leyti sem árshátíðin 2006 fór fram.
Förum vjer því hjer með formlega fram á að allir er fengið hafa 'lánaða' hluti úr tímavjelinni eða stolið hlutum úr henni skili þeim þegar í stað. Ellegar hafa þeir verra af Gerir eliptonið klárt.
Þessu til viðbótar vantar oss lágmark mínus 3,7 milljarða tonna af 'exotic matter'.
Sendir Vlad þessa þrjá 1/4" allen bolta sem duttu oní vasan þegar tímavélin fór í tékk
Sko ! Það verður árshátíð þann 17.nóv og ef við tvö mætum þá verður þetta sjálfkrafa besta árshátíðinLjómar upp
Ljómar upp Nú vitum vjer a.m.k. til hvaða dags vjer þurfum að ferðast til að kanna málið - með fyrirvara um að tímavjelin muni virka.
PS Ef vjer verðum tvöfaldir á árshátíðinni er eigi öruggt að ástæðan sje ölvun. Slíkt gæti líka verið vísbending um að tímavjelin hafi virkað, virki eða muni virka. Einnig mundi það gefa til kynna að niðurstaða tímaflakks hafi orðið að breyta tímasetningu þess atburðar (eigi árshátíðar) er nú er tímasettur 17. nóvember.
Staða mála: Nú erum vjer komnir með mínus 100 milljón tonn af 'exotic matter' Ljómar upp. Vantar því einungis -3,6 milljarða tonna í viðbót til að knýja tímavjelina.
Enn vitum vjer af 9745 atriðum sem vjer þurfum að laga í tímavjelinni. Hún færi reyndar í gang þó rúmlega 2000 þessara atriða væri sleppt en gæti þá því miður gjöreytt allri jörðinni í leiðinni. Hafi einhver eitthvað við það að athuga skorum vjer á viðkomandi að láta í sjer heyra eigi síðar en 15. nóvember nk.
Enn vitum vjer af 9745 atriðum sem vjer þurfum að laga í tímavjelinni. Hún færi reyndar í gang þó rúmlega 2000 þessara atriða væri sleppt en gæti þá því miður gjöreytt allri jörðinni í leiðinni. Hafi einhver eitthvað við það að athuga skorum vjer á viðkomandi að láta í sjer heyra eigi síðar en 15. nóvember nk.
Þessi vélardrusla minnir mann helst á windows stýrikerfið. Allt fullt af böggum, bakdyrum og biluðu rusli.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Það getur ekki verið. Tölvan sem stjórnar henni er með Linux.
Þá hlýtur þetta að vera vélbúnaðarvandi eingöngu. Nema gleymst hafi að uppfæra einhverja pakka, vitanlega.
Mundirðu eftir að fylla vatnskassan með últrakóbaltblönduðu Ákavíti?
Þú verður líka að muna að stíga á kúplinguna og setja í gír. Horfir áhyggjufullur á Vlad
Ég sparka alltaf í sjónvarpið mitt þegar það hlýðir mér eigi og það virkar ævinlega!
Ljómar upp
Ég lærði það af pabba, sem sparkaði ætíð í mig þegar ég hlýddi eigi.
afljómast
Ég sparka alltaf í sjónvarpið mitt þegar það hlýðir mér eigi og það virkar ævinlega!
Ljómar upp
Ég lærði það af pabba, sem sparkaði ætíð í mig þegar ég hlýddi eigi.
afljómast
skellir Óskari í sófann Og hvað fannst þér um þaðnuddar hökuna og párar svo í skrifblokk
Ég fór að hlýða og varð að betri manni. Þetta leiddi mig af braut sem sennilega hefði endað með Bakkusi og Vímusi sem mínum bestu vinum. Ég fór að læra að meta foreldra mína og virða og á endanum gerði þetta mig að þeim manni sem ég er í dag.
Gengur berserksgang og sparkar í allt og alla í þeirri meiningu að það bæti heiminn
Klórar sér í höfðinu
Sparkar í Óskar
Hættu þessu sparki!
Vaknar úr löngum, þungum og algerlega óútskýranlegum dvala. Rennur á þef þann er kemur er minnst er á árshátíð
Góða kveldið hjér! Heyra ofsofin eyru mín rjétt? Er að brezta á árshátíð? Hvar nálgast jég miða á hana, sjé jég eigi of seinn orðinn?
SLOPPUR!
Hoppar af kæti
Þú ert akkúrat í tíma!