— GESTAPÓ —
Hverjir eru aðal?
» Gestapó   » Efst á baugi
     1, 2, 3, 4  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 26/10/07 19:12

Dula fékk ljómandi góða hugmynd, en mér finnst ótækt að þetta sé ekki leynileg kosning og bjó því til könnun sem hægt er að taka þátt í hér.

Niðurstöðurnar verða sendar mér í tölvupósti og ég skal senda þær áfram á formann skemmtinefndar.

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 26/10/07 19:49

Þetta er mikil framför ‹Ljómar upp›. Hinsvegar finnst oss vanta þarna kosningu um viss atriði, t.d. mesta laumupúkann, frumlegasta/hugmyndaríkasta Gestapóann og kannski eitthvað fleira. Síðan er bara einn möguleiki í 6-8. en þrír í 1-5. Svo þykjumst vjer vita að hver sem er geti kosið, ekki bara heimavarnarliðið hjer (ekki er alveg víst að það komi að sök).

Að lokum leggjum vjer til að einnig verði kosinn mesti nöldrarinn.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Dula 26/10/07 19:56

‹Ljómar upp›Flott framtak Norn, ‹knúsar Nornu og kúluna fast› Svo má koma með kynþokkafyllsta póann , aðal parið osfrv. Hvernig er það, sérðu hver kýs hvað eða hverjir kjósa aftur og aftur.‹Glottir eins og fífl›

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 26/10/07 20:40

Já, hvernig væri að fá uppástungur um fleiri flokka?
Ég skal svo bara smella fleiri spurningum í könnunina ‹Ljómar upp›

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 26/10/07 20:45

Tökum þetta sem könnun á könnuninni og uppástungur eru vel þegnar
Ætla að fækka uppástungumöguleikunum í einn í hverjum flokki... það er annars svo ofsalega ruglingslegt að lesa úr þessu!

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 26/10/07 20:52

Ah, meira að... það er bara hægt að vera með 10 spurningar í fríkeypis útgáfunni af þessu dóti.

Þarfagreinir gæti örugglega búið eitthvað þessu líkt til og haft fleiri spurningar í boði.
Eigum við að biðja hann fallega?

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Dula 26/10/07 20:59

‹setur upp hvolpaaugun› Eeeeeelskuuuu Þaaaarfiiii.

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 26/10/07 22:26

Ég kýs Ég Drap Jesú í öllum flokkum.

-

Þorpsbúi -
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Z. Natan Ó. Jónatanz 26/10/07 22:42

Minn eftirlætispói er klárlega Þvottapoki Aðgangsharður.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 26/10/07 23:29

Z. Natan Ó. Jónatanz mælti:

Minn eftirlætispói er klárlega Þvottapoki Aðgangsharður.

‹Lyppast niður af hlátri›

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 26/10/07 23:32

Nefnduð þið nafn mitt? Ég get hent einhverju saman. Getum við ekki bara ákveðið flokkana hérna í þræðinum og síðan klambra ég saman könnun?

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 26/10/07 23:36

Er það ekki of mikil fyrirhöfn að kjósa besta félagsritið?

Ég er ekki díler. Ég er læknir, lyfjafræðingur, lyfsali og fjölfíkill! • Þar að auki er ég skipaður Efnavopnaráðherra Baggalútíu
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 26/10/07 23:38

Er ekki of mikil fyrirhöfn að vera að velja fólk í þessa flokka?
Ég býð mig bara fram í alla flokka, svona til að einfalda þetta fyrir ykkur.

Nornakisa • Dýramálaráðherra • Lyklavörður Pyntingaklefans • Sérlegur Músaveiðari Baggalútíska Konungsdæmisins • Konunglegur listmálari við hirðina • Fólskulegur Ofsækjandi Þarfagreinis
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 26/10/07 23:40

Vímus mælti:

Er það ekki of mikil fyrirhöfn að kjósa besta félagsritið?

Það yrðu afskaplega skiptar skoðanir á því, án efa - þannig að erfitt gæti orðið að finna afgerandi sigurvegara.

Annars man ég að á síðasta nefndarfundi kom til umræðu að nefndin tilnefndi sjálf kandídata í öllum flokkum. Er það kannski of takmarkandi?

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 26/10/07 23:40

Jú, ég hefði haldið það.

Eftirlætispóinn?
Besta skáldið?
Mesti laumupúkinn?
Pói ársins?
Mesti sjentilmaðurinn (sem mér finnst merkilegra en kynþokkafyllsti gestapóinn)?
Mesta daman?
Orðheppnasti Póinn?
Mesta krúttið?
Besti nýliðinn?
Frumlegasti Póinn?
Mesti drykkjurúturinn?
Bestur í stafsetningu?
Mest saknað?

Bara svona til að nefna nokkra mögulega flokka ‹Brosir›

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 26/10/07 23:41

Mesti nýliðaskelfirinn ?

Það þarf þó að passa að hafa eigi alltof marga flokka en komnar eru margar góðar hugmyndir.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 26/10/07 23:45

Mér lýst ágætlega á þetta.
Þá missi ég ekki titilinn sem kynþokkafyllsti gestapóinn frá því í fyrra.
‹Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið›

Nornakisa • Dýramálaráðherra • Lyklavörður Pyntingaklefans • Sérlegur Músaveiðari Baggalútíska Konungsdæmisins • Konunglegur listmálari við hirðina • Fólskulegur Ofsækjandi Þarfagreinis
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 26/10/07 23:48

Svo mætti líka bæta við Mesti titlasafnarinn (í svona kosningum). Þar koma einungis tveir Gestapóar til greina ‹Ljómar upp›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
LOKAÐ
     1, 2, 3, 4  
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: