Dundar sér við styttugerð
Já, hér væri fínt að setja hraðbanka.
Málar orðin Hraðbanki stórum stöfum á vegginn
Og ekki má vanta ónýtan tíkallasíma.
Leggur gamlan gemsa á jörðina. Og sparigrís við hliðina.
Og gosbrunnur...máske Úlfamaðurinn að spúa leðju yfir okkur hin?
Plantar nokkrum vel völdum útigangsmönnum á hálfónýtan bekk við styttuna af Enter
Hana! Alveg eins og í úgglandinu.
Vaaaá. Rosalega er þetta flott torg Gengur um torgið og finnst að hann sé staddur í útlöndum. Nei, sjá þennan Kínakall. Híar hlæjandi á bláann mann með gleraugu sem stendur og rífst eitthvað á kínversku.
mótmælir hástöfum ??,??????!
Hvað hefurðu á móti hástöfum?
Hlær enn meira að Kínakallinum og finnst hann stórskrýtinn
Höllin verður að vera hér . plantar turtildúfuhöllinni við torgið og svo verslunargatan hér skellir heilli götu á stærð, lengd og gæðum við strikið í köben, smáveigis af gróðri, auglýsingaskilti og dúfur..Stekkur hæð sína Já flott er
Labbar um torgið
Kveikir sér í stórum vindli
Askar ofaní gosbrunninn
Þetta er fínt torg hjá þér Tina, en vantar ekki pylsusjoppu og tyggjóklessur á götuna ?
Nú, sjáið þið ekki kínversku táknin? mótmælir af enn meiri kröftum og bíður eftir skriðdrekunum
Hvurslags - læti eru þetta?
Hér eru fínustu styttur bendir á gullslegna Enter-hnappinn og brjóstmyndina af Znata, afþreying bendir á útigangsmennina og veitingar spýtir tyggiggiggúmmíklessu á torgið.
Ef þú vilt endilega láta keyra yfir þig væri máske best að tala við forsetann.
Opnar dýflissurnar og lætur leiða hóp af Óvinum ríkisins á torgið til að lyfta sér upp og fá sér ferskt loft
Keyrir yfir þá á skriðdreka
Kemur askvaðandi með 40 pakka af húbba búbba og réttir öllum
Það vantar tyggjóklessur á torgið svo þetta sé alvöru.
Festir skriðdrekann í stórri húbba búbba klessu
Fjandakornið.
Dettur um eina tyggjóklessuna og veltur yfir torgið þannig að tyggjóið sest utan á hann og þekur hann frá toppi til táar
Ætlar að taka smá til á þessu glæsilega torgi og hendir Galdra óvart í ruslið í mistökum fyrir tyggjóklessu
Hvaða óhljóð eru þetta í þessari tyggjóklessu, ætli þetta sé sprengjityggjó ?
Nei, Galdri, ert þetta þú ljúfur, hvernig í ósköpunum fórstu að þessu, er þetta nýja skegg að rugla þig algjörlega í kollinum? Þú verður að gera eitthvað í þessu, það verður ekki auðvelt að ná þessum klessum af þér án þess að klippa þetta splunkunýja og fína skegg.
Sest á bekk með hinum rónunum og lætur sér líða ósköp vel
Æ, þetta var bölvaður aulaháttur í mér að hrasa svona.
Gerir CTRL+Z að hætti galdrahyskisins og tyggjóklessurnar hverfa eins og dögg fyrir sólu
Má hengja fólk á þessu torgi?
Gerir það ekki sama gagn og að keyra yfir það á skriðdrekum?
Mér finnst persónulegra snyrtilegra að hengja, en hitt er fljótlegra.