Það tilkynnist hér með opinberlega að ég er hissa á að sjá að fólk var farið að kvarta yfir löngum vetri í febrúar í fyrra. Ég man bara ekkert eftir að það hafi verið vetur þá.
Ég tilkynnist hér með opinberlega.
Opinberast
... að krossgata veit hvert skal halda.
Það tilkynnist hér með opinberlega að ég hef fengið opinberun.
Það tilkynnist hér með opinberlega að ég hefi vanrækt Gestapóið verulega mikið.
... að ég er öll að koma til, bíð samt eftir að hætta að heyra skrítin hljóð sem ég veit ekki hvaðan koma.
...að ég er bæði kvíðinn og hræddur.
... að ég ætla á "verkefni ómögulegt" um helgina.
.. að þeim fjölgaði.
Það tilkynnist hér með opinberlega að laumupúkaleikurinn gengur út á það að sumir spilarar lesa ekkert nema mafíuþræðina.
Að það haustaði snemma í ár.
... að þegar ég smelli á Innlegg yðar (eða Þín innlegg) þá sést nafnið mitt næstum því alls staðar.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að ég er að fá mér koníak!
... að það fólk pirrar mig, sem getur ekki tekist á við árstíðir öðruvísi en með neikvæðum athugasemdum og aulafyndni.
Það pirrar mig ósegjanlega mikið að fólk skuli voga sér að pirra sig á því að ég sé pirraður og setji inn pirringsstadusa um pirrandi veður.
Veðrast út af pirrinu og skellir veðurvjelinni á eftir sjer
Það tilkynnist hér með opinberlega að engar opinberar tilkynningar
hafa birst í þónokkurn tíma.