Ííííha!
Nú vil ég fá að vita hver er mesti karlmaðurinn. Svo ég viti hverjir eru mínir helstu keppinautar.
Kjósa má bæði í karla- og kvennaflokki. (Hvaða kona er þá mesti karlmaðurinn?)
Snarar kálf
Ég kýs sjálfa mig í kvennaflokki og Hvæsa í karlaflokk.
Hakuchi er án efa lang svalasti karlpóinn. reynir að hnykla vöðva
Kalliði þetta keppinauta?
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
En ég bjó til könnun til að einfalda þetta. Hún er staðsett hér.
Og hvenær liggja næstu tölur úr Gestapó-umdæmi-nyrðra fyrir?
(Viðbót: ég vil tilnefna Vímus sem helsta karlmenni Gestapó. Hann er svo harður að hann kallar ekki einu sinni ömmu sína ömmu sína.)
-
Hakuchi er mikill karlmaður og sannkallaður herramaður. Kvennaflokkinn malar Amma Kúreki.
Texi minn, hafðu þig hægan. Það verður líka kosið um hommalegasta ,, karlmanninn."
Ég myndi halda að nýjustu og síðustu tölur yrðu birtar á árshátíðinni, en svo er það ákvörðun formanns skemmtinefndar (Dula held ég) að taka loka ákvörðun um það.
En ég bjó til könnun til að einfalda þetta. Hún er staðsett hér.
Og hvenær liggja næstu tölur úr Gestapó-umdæmi-nyrðra fyrir?
(Viðbót: ég vil tilnefna Vímus sem helsta karlmenni Gestapó. Hann er svo harður að hann kallar ekki einu sinni ömmu sína ömmu sína.)
-
Það er ósköp eðlileg skýring á því , Limbri minn.
Sjaldan orða verður vant,
Vímusi þeim fjanda.
Sína ömmu setti í pant
sem var hætt að anda.
Já og það vantar nú nokkrar tilnefningar í könnunina, Hver er kynþokkafyllstur, hver er fyllstur , hvaða par er aðal og svo má koma með eitthvað kjánalegt fyrir kjánanaLjómar upp
Vjer vorum einmitt að gera athugasemdir við að það er ýmislegt í viðbót er kjósa má um, sjá hjer:
http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?t=9299
Dreifir mútufje og áróðri í allar áttir í tilefni kosninganna

Flott er Vlad.Gefur frá sér vellíðunarstunu
hvaða par er aðal
Ömm, þarf að kjósa um það?
Bendir á kúluna
Það eru mörg pör á gestapó, þið eigið auðvitað flottustu kúluna á gestapóinu , enginn vafiLjómar upp