Ég hef tekið eftir því uppá síðkastið að nýliðar og annar óþjóðalýður hefur verið að komast inn í Baggalútíu án þess að fara í gegnum Innflytjendahliðið. Ég er hér með tillögu til að breyta því:
Ég legg til að reistur verði múr út frá hinu glæsta Innflytjendahliði því það hefur sést á Radar og af landamæraeftirlitinu að fólk virðist einfaldlega hlaupa framhjá hliðinu, það gengur ekki! Múrinn yrði í kringum hjarta hins baggalútíska heimsveldis, nafla alheimsins og aðsetur sannleikans; Baggalútíu sjálfa (þ.e. fyrrverandi Ísland). Það segir sig sjálft að það er óþarfa tíma- og peningaeyðsla að gera múr í kringum stærra svæði en það. Auk þess neyðumst við örugglega til að sleppa alveg Vestfjarðarkjálkanum. Ég held að það sé enginn sem nenni að þræða alla þá firði sem þar eru. Þar væri því tilvalin staður til að setja alla óæskilega nýliða.
Kostirnir við svona múr eru ótvíræðir. Við myndum ná algerri stjórn yfir innflutningi utanaðkomandi nýliða, við fengum fullkomna stjórn yfir ströndinni og innrás í landið yrði jafnvel enn ólíklegri og erfiðari fyrir hugsanlega óvini ríkisins.
Gallarnir eru þó líka nokkrir en vega þó ekki upp á móti kostunum. Múrinn yrðu vissulega dýr, þar sem hann þarf að mestu leiti að vera úr kóbalti svo hann verði nú sem öruggastur. Svona mikil notkun á kóbalti gæti leitt af sér skort á kóbalti á öðrum sviðum samfélagsins, þessum skorti þarf því að mæta með endanlegri innleiðingu fyrirheitna landsins þar sem vitað er að finna má miklar og arðvænar kóbalt-námur. Ég væri því til í að fá skýrslu varðandi það hvernig það alltsaman gengur.
Ég er ekki svo viss um að þetta sé svo góð hugmynd hjá þér frá sálfræðilegu sjónarhorni séð.
Sjáðu til... hérna á tímum Katrínar miklu, keisara* Rússlands, þá var fólk hennar að svelta.
Hún hafði heyrt af frábæru fyrirbæri sem auðvelt væri að rækta, eða svokölluðum kartöflum.
Hún keypti heil býsn af þessu og ræktaði síðan heilan helling fyrir fólk sitt.
Þegar fólkið heyrði að þetta væri fyrir þau, því þau væru að svelta, þá vildi enginn sjá kartöflurnar.
Enginn vill éta uppbótar mat.
Þá tók Katrín á það ráð að byggja háa veggi utan um kartöflugarða sína.
Um leið og fólk sá háu veggina þá reiknaði það með að þarna fyrir innan væri eitthvað sem aðeins væri aðlinum ætlað... sumsé kartöflurnar.
Eftir það varð eftirspurn í kartöflur gríðarleg og allir vildu borða þennan herramanns mat.
Þannig að það er spurning hvort að veggur myndi ekki bara gera illt verra?
*Ég skrifa keisari, vegna þess að mér finnst orðið keisaraynja benda til þess að hún hafi verið gift keisaranum. En hún var sumsé einvaldurinn.
Hvað viltu þá gera? Setju upp risavaxin neon-skilti sem auglýsa Baggalútíu opna fyrir alla? Viltu kannski leggja hraðbrautir að Baggalútíu úr öllum áttum, bæta hafnaraðstöðu og minnka eftirlit? Eigum við kannski ekkert að fylgjast með lofthelginni heldur?
froðufellir
Það var nú ekki það sem ég sagði... ég er ekki viss um að það myndi bæta málið heldur.
Hinsvegar held ég að það væri sniðugt að bera út sögusagnir um hvað baggalútur er ofboðslega leiðinlegt svæði.
Verra er b*******d.is og h**i.is.
Allir sem svæðið stunda, ef aðspurðir, gætu komið með hryllingssögur um valdasjúkan ofsóknarbrjálaðan forseta, konung sem selur allt - jafnvel ömmu sína, hatur á sumum íslenskum bókstöfum á borð við y og é, hryllilega busun og misnotkun á nýliðum, óþolandi ástarvellu í pörum, blóðsúthellingar á Færeyingum og allt eftir því.
Þetta held ég að gæti virkað.
Róast
Jaaá, þú meinar það.
Það var nú ekki það sem ég sagði... ég er ekki viss um að það myndi bæta málið heldur.
Hinsvegar held ég að það væri sniðugt að bera út sögusagnir um hvað baggalútur er ofboðslega leiðinlegt svæði.
Verra er b*******d.is og h**i.is.
Allir sem svæðið stunda, ef aðspurðir, gætu komið með hryllingssögur um valdasjúkan ofsóknarbrjálaðan forseta, konung sem selur allt - jafnvel ömmu sína, hatur á sumum íslenskum bókstöfum á borð við y og é, hryllilega busun og misnotkun á nýliðum, óþolandi ástarvellu í pörum, blóðsúthellingar á Færeyingum og allt eftir því.
Þetta held ég að gæti virkað.
Bara að vera nógu helvíti vond við nýliðana, þá hlaupa þeir yfir á önnur svæði og breiða út orðið, sjá t.d. hér.
(VARÚÐ, hlekkurinn hér á undan inniheldur slóð á spjallsvæði sem gæti í einni svipan lækkað greindarvísitölu þína um minnst 30 stig. Smellur er á þína eigin ábyrgð.)
Tárast af hlátri
Hún hefði frekar átt að nota Mókollu nafnið hér... ég er ekki frá því að ég hefði verið betri við hana með gott og gilt íslenskt nafn.
finnur greindarvísitöluna lækka Neeei!
Þökk sé barnalandi get ég ekki ort hringhent lengur...
Slær Önnu
ÉG ÞARF AÐ TAKA PRÓF!
Finnur hvernig allt námsefnið lekur úr heilanum
HEY! Ég varaði ykkur við, ég get ekkert gert að því þótt þið séuð svona forvitin.
Curiosity killed the... the... who was it again?
Horfir ásökunaraugum á Önnu
Cat, ekki tiger. Þjer þurfuð því eigi að hafa áhyggjur.
Fer í eiturefnabúninginn, setur upp lekavörðu gáfnaverjuna og smellir á hlekkinn Held að hún hafi verið, það sem kallast, pwnd með þessu innleggi hérna.
Pakkar innlegginu í vakúm og sótthreinsar eituefnagám úr skyggðu gleri áður en hulunni er svipt af ósmekklegheitunum
Stella í orlofi | 15. september '07, kl: 20:21:40
SV: vá ef það eru dónar einhversstaðar þá er það á
það er nu bara voða svipað og her á þessum vef.
Takið sérstaklega eftir lúmsku hæðninni sem fyrirfinnst í fjórða til sjötta orði í neðstu línu. Bendir með laserpenna á viðkomandi svæði
Um hvern er rætt nákvæmlega.titrar af spennu
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Þetta er brjálæðislega fyndin tilraun til samskipta og endar hrikalega vel.
sækir sement
Ég held að skipulögð áróðsherferð væri hagkvæmasta lausnin.
Skrifar botta til að senda innlegg um hversu leiðinlegt Gestapó sé á alla helstu spjallþræði íslenska alnetsins
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Klöguskjóða!