Ég var að skrá mig hér í fyrsta sinn. Ég kalla mig Ingiríði Yngismær og ég er ljóðskáld með meiru. Ég get verið býsna athyglissjúk stundum en þið lærið fljótt að umbera mig af því að ég er svo yndisleg.
Ástarkveðjur,
Ingiríður Yngismær
Velkomin Ingiríður, það verður gaman að hitta þig á kveðskaparþráðunum.
Þakka þér! *hneigi mig pent*
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Kanntu ekki neitt?!
En annars vertu velkomin.
Ingiríður Yngismær
undradísin kæra.
Syngur vinur syngur hlær
í sundlaug vill hér hræra.
Tekur sig saman í andlitinu og snyrtir skeggiðVerið þér ævinlega velkomin og ég býð yður umsvifalaust að ganga í lið mér við að leggja undir mig Baggalútíu. Þú mátt verða Fegrunar- og yndismálameistari í ráðuneyti mínu. Snýr sér undan og glottir illyrmislega
Þakka þér! *hneigi mig pent*
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Kanntu ekki neitt?!
En annars vertu velkomin.
Ég er býsna fljót að læra ef fólk bendir mér á mistök mín.
Tekur sig saman í andlitinu og snyrtir skeggiðVerið þér ævinlega velkomin og ég býð yður umsvifalaust að ganga í lið mér við að leggja undir mig Baggalútíu. Þú mátt verða Fegrunar- og yndismálameistari í ráðuneyti mínu. Snýr sér undan og glottir illyrmislega
Huxi, mér geðjast vel að gáfumönnum, þeir eiga hug minn allan. Hitt er annað minn kæri að ég hef sjálf mín eigin plön um yfirtöku Baggalútíu. Hlær dátt og hristir hárið á þokkafullan hátt
Ég vara ykkur við ég reyndi hér yfirtöku á mínum úngdóms árum hér en það fór ekki betur en svo að það var ég sem var innlimaður.
Ég vara ykkur við ég reyndi hér yfirtöku á mínum úngdóms árum hér en það fór ekki betur en svo að það var ég sem var innlimaður.
Já við sjáum hvað setur. En þú veist hvað í mér býr!
Huxi, viltu gjöra svo vel að haga þér eins og maður! Maður snýr ekki baki við dömum á þennan hátt! Og varstu búinn að fara í gegnum Innflytjendahliðið?! Sparkar Huxa að hliðinu
En já, blessuð. Snýr sér að Ingismærinni Vertu bara sæmilega velkomin. Langar þig í hraunlampa? Ég á einn hérna á sölu.
Ég held að ég hafi ekki kíkt í heimsókn inni í þig en hafi svo verið er það svo lang síðan að ég er fyrir löngu búinn að gleyma hvernig innbúið hjá þér er.
Huxi, viltu gjöra svo vel að haga þér eins og maður! Maður snýr ekki baki við dömum á þennan hátt! Og varstu búinn að fara í gegnum Innflytjendahliðið?! Sparkar Huxa að hliðinu
En já, blessuð. Snýr sér að Ingismærinni Vertu bara sæmilega velkomin. Langar þig í hraunlampa? Ég á einn hérna á sölu.
Þakka þér. Hraunlampa? Nei held ekki en ef mér yrði boðið í rómantískan kvöldverð við kertaljós þá myndi ég íhuga málið gaumgæfilega.