<Skrifar og skrifar í algöru huxanaleysi> Mikið taka allir mér vel hérna, meira að segja olíukóngurinn upprisni er að hjálpa mér að ná völdum. <Tautandi meðan hann skrifar undir eigin glötun>
Þér er svo velkomið að reyna að ná völdum í Bagalútíu. Við fylgjumst kurteislega með.
Það má alltaf reyna..... en það er spurning hvað verður um þig þegar það mistekst. Kanski verður þú étinn.....
Það er nú hægt að gera sér ótrúlegustu hluti að góðu ef maður fær bara nóg ákavíti með.
Virðir nýliðann vel fyrir sér, sleikir útum
Sturtar í sig tunnu af ákavíti xT
Hvar er Bagalútía annars?
Óvinir ríkissins búa þar.
Það er greinilegt að maður þarf að ganga í kattavinafélagið ef valdatakan á að heppnast sómasamlega Virðir Tuma og Tígru fyrir sér með skelfingarsvip Má ekki bjóða ykkur Ákavíti... með músabragði?
Þau eru meira fyrir Færeyinga kettirnir hér, mýs eru eiginlega ekki upp í nös á ketti hvað þau varðar.
Skrambinn, ég hefi bara fundið dauðar mýs í Ákavítistunnunum . Enga dauða Færeyinga.Klórar sér heimskulega í höfðinu
Ef þessi árás á að vera laumuleg þá þarftu að finna laumupukaþræðina og vinna þar.
Það er verið að laumupukrast í því máli. Værir þú til í að aðstoða mig gegn svo sem einu kílói af kóbalti..?Brosir sínu falskasta brosi, svo glittir í gula jaxlana
Það er verið að laumupukrast í því máli. Værir þú til í að aðstoða mig gegn svo sem einu kílói af kóbalti..?Brosir sínu falskasta brosi, svo glittir í gula jaxlana
Horfir Huxandi á Uxa
Pant ekki!
Iss, þá finn ég bara einhvern annan. Horfir lymskulega í kringum sig í leit að auðveldu fórnarlambi
Kemur inn á sviðið sem auðvelt fórnarlamb.
Kemur inn á sviðið sem auðvelt fórnarlamb.
Carrie nei.Kemur ríðandi á hvítum hesti og þrífun hina varnarlausu Carrie til sín áður en illmennið sálarlausa veiðir hana í net sín með gilliboðum og fagurgala.
Rankar við sér, tómar ákavítistunnur út um allt, kóbaltið horfið og allt á rúi og stúi Þessir væntanlegu þegnar mínir eru greinilega ekki tilbúnir fyrir alræði mitt. Það væri réttast að setja Hr. Upprifinn á lista yfir óvini ríkisins. Verst að það er ekkert ríki til að tala um ennþá. Skrambans vandræði...Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Togar í skeggið á Huxa