Hér með legg ek til að Papúa Nýja-Gínea muni heyra undir Baggalútíu með því skilyrði að ek verði lávarður þess svæðis.
Ek kalla forseta heimsveldisins og aðra höfðingja þess til að svara frumvarpi þessu.
Ágætis hugmynd, sem Stríðsmangari hins baggalútíska heimsveldis er ég svosem alveg hlynntur þessu. En ef við látum verða af þessu nenni ég samt ekki að standa í því að ráðast á eyjuna og þurfa svo að stoppa við þessa línu þarna í miðjunni. Öll eyjan segi ég og þar af leiðandi öll Indónesía, og fyrst við erum byrjaðir. Af hverju ekki líka Malasía, Tæland, Víetnam og allt þar á milli?
Og svo hljómar Malasía líka eins og einhver sjúkdómur, ég held að það sé réttast að eyða honum.
Er tekið við sjálfboðaliðum í her baggalútíska heimsveldisins? Það er orðið of langt síðan maður hefur drepið eitthvað.
Og svo hljómar Malasía líka eins og einhver sjúkdómur, ég held að það sé réttast að eyða honum.
Malasía fær nýtt og ferskt nafn. PARADÍSA
Sem valkyrja er ég að sjálfsögðu hlynnt því að þið farið í stríð, það er orðið allt of langt síðan það hefur verið eitthvað að gera í valkyrjubransanum.
Og svo hljómar Malasía líka eins og einhver sjúkdómur, ég held að það sé réttast að eyða honum.
Malasía fær nýtt og ferskt nafn. PARADÍSA
Fullkomið, og svo er líka svo mikið af náttúruafurðum í Mala... Paradísu. T.d. tvíburaturnarnir í Kuala Lumpur sem henta vel sem efniviður í risastórar Elipton-sprengjur.
Ég panta að gera Petronas turnana í Kuala Lumpur að mínum einka sumarbústað og Sepang kappakstursbrautina sem mína einka akstursbraut fyrir minn einka eðalvagn.
Ég panta að gera Petronas turnana í Kuala Lumpur að mínum einka sumarbústað og Sepang kappakstursbrautina sem mína einka akstursbraut fyrir minn einka eðalvagn.
Nei, frekar vil ég að Petronas-turnarnir verði Elipton-sprengjur. En það þarf þá náttúrulega að fylla þá með Eliptoni, en það er nú ekki svo nojið sjáiði til.
Svei, mér þá, rétt, ráðumst á allan eyjaklasan (þó þarf ekki að ráðast á Papúa Nýju-Gíneu þar sem ek hef þegar náð yfirráðum þar og bælt niður öll uppreisnarorð), þar með talið Ástralíu og Nýja-Sjáland.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Já, ég væri til í að skoða þetta svokallaða óperhús í Sidney. Mig hefur alltaf grunað að það sé geimskip.
Andskotans landvinningastefna er þetta í ykkur strákar.
Þið sem viljið aldrei fara út af gestapó!Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Lítur á Don
Hendum honum út!
Mikið er þetta góð áætlun.
Ég skal fjármagna stríðsreksturinn.
Tekur upp ávísanaheftið
Lítur á Don
Hendum honum út!
Brettir upp ermarnar
Stillir sér upp við hlið Upprifins, horfir ógnandi á hina pottormana og hnyklar vöðvanaJæja, er slagur?
Byrjar að klappa taktfast Slagur Slagur Slagur..
Vér erum nokkuð samþykkir innlimun Papúu, og jafnvel eyarinnar allrar, en oss lízt þó eigi nógu vel á þá fyrirætlan Joðs að gerast æðsti maður þar. Það þykir sjálfsagt mál að forseti, konungur, keisari og forsætisráðherra, auk annarra þjóðhöfðingja Baggalútíu samþykkja á fundi sín í milli hver sé þess verðugur að stjórna eynni.