Hvað með svona kasjúv hnetur? Kashew kashev ..bö kann ekkert að skrifa þetta.
Litla hefur það. Kasjúhnetur eru það heillin.
Nú skal ég.
Hvað þýðir kipilefti.
Þetta er tökuorð, en hvorki á né úr íslensku.
Flissar
Þetta hljómar eins og finnska... nema það eru ekki nægilega mörg i í þessu.
Gæti verið tekið úr ensku... Keep Left.
Giska á að þetta sé ungverska, rúmanska eða eitthvað þvílíkt og þýði að maður eigi að vera vinstra megin á götunni.
Ég veit að kipi er til í ýmsum afrískum málum s.s. Swahili. Því vil ég meina að þetta hafi eitthvað með Afrikaans að gera. Sennilega úr umferðarreglum í Suður Afríku. Eigum við að giska á vinstri beygja? Rær vongóður fram í gráðið
Komið af keep left, og Swahili, en annað er ekki rétt.
Fleirtalan er wikilefti.
Það aka allir á vitlausum kanti þarna í Suður Afríku. Humm..Klórar sér í höfðinu Þýðir þetta kannski HRINGTORG
Rétt.
Öll hringtorg voru víst merkt rækilega Keep left. Svo þá hétu þau bara kipilefti. Ki hefur eintölumerkingu í Swahili skilst mér og þess vegna kemur þessi skemmtilega fleirtala.
Hvernig í ósköpunum veit fólk eitthvað um swahili?
Mér hefði aldrei dottið það í hug!!
hristir höfuðið og fær alltíeinu mikla þörf fyrir að fara í fjarnám
Ég kann ekki fleiri orð í þessu máli. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Hvernig í ósköpunum veit fólk eitthvað um swahili?
Mér hefði aldrei dottið það í hug!!
Það hlýtur að vera eðlilegt að álykta að Huxi og Regína séu einn og sami afríski maðurinn.
Ég vissi ekki að Glúmur væri Afríkumaður.
Ætli hann sé nígeríski hershöfðinginn sem lofar mér gulli og grænum skógum ef ég sendi honum tímabundið alla peningana mína?
Ég vissi ekki að Glúmur væri Afríkumaður.
Ætli hann sé nígeríski hershöfðinginn sem lofar mér gulli og grænum skógum ef ég sendi honum tímabundið alla peningana mína?
En ef Glúmur er þessi tiltekni hershöfðingi er þá ekki tilgangslaust að gef þessum manni peningana þína? Er það ekki bara svipað og að taka fimmhundruð kall úr hægri vasanum og setja hann í þann vinstri?
Hvernig í ósköpunum veit fólk eitthvað um swahili?
Mér hefði aldrei dottið það í hug!!
Það hlýtur að vera eðlilegt að álykta að Huxi og Regína séu einn og sami afríski maðurinn.
Það er reyndar ekki rétt ályktun þar sem ég var við síðustu talningu 1 persónuleiki og hefi ekki orðið var við fleiri persónuleika í mér síðan talning fór fram. Reynir að leyna geð- og persónuleika klofningi sínum eftir megni
Spurt er: Hvað þýðir orðasambandið Nos da og úr hvaða Evrópumáli er það?
Nituroxíð takk.