Jæja, nú er komið að því.
Við Þarfi erum að verða fimmtug, hvort sem þið trúið því eða ekki!
Ég á nefnilega afmæli í raunheimum þann 20. sept næstkomandi, og Þarfi þann 26.
Ég á líka rafmæli 26. og í tilefni af þessu öllu saman verður haldið heljarinnar afmælisboð næsta laugardagskvöld og ykkur er öllum boðið!
Hátíðarhöldin verða heima hjá þarfa þar sem þið, sem hafið mætt á Þarfaþing, hafið áður komið.
Fyrir nánari upplýsingar, getiði spurt hér og/eða sent mér eða Þarfa einkapóst.
Gott væri ef þið létuð heyra í ykkur hér á þræðinum ef þið hafið í hyggju að mæta, svo að við sjáum um það bil hve fjölmennt verður.
Kveðja
Tigra og Þarfi
Við höfum tekið kvöldið frá. Stekkur hæð sína
Máski ek og mín spúsa mætum.
Leggur hlustunarpípu að einni loppunni á Tigru Mhmmmm... Það er eins og mig grunaði, raunheimaórarnir eru að styrkjast. Gefur bendingu og menn í hvítum sloppum gera tilraun til að setja Tigru á börur Svona, þetta er allt í lagi góða mín, við ætlum bara að fara og skoða fallegu rafmagnstækin í Ofskynjunarmeðferðarstofnuninni...
En svona að ölllu gamni slepptu þá verð ég (að sjálfsögðu) á staðnum.
Ég mæti. Glottir við tönn
Vjer tökum undir með Önnu Pönnu, hjer er afar alvarleg raunheimasýki á ferðinni og lækning nauðsynleg. Vjer óttumst hinsvegar að Þarfi en einkum þó Tigra (hún stofnaði þráðinn) sjeu með veikina á svo alvarlegu stigi að ekki sje unnt að lækna hana hjer inni á Gestapó og því sje eigi um annað að ræða en að mæta á staðinn (eða rjettara sagt senda staðgengil) á laugardagskvöld með nauðsynlegar lækningagræjur.
Þaraþing! Þar þing! Þarfafaraþing! Þarfaþing!*
*Lausleg þýðing: Ég mæti.
Þið gerið þetta viljandi... þið...þið... þarna... Brestur í óstöðvandi grát Ég sem þarf að nota laugardagskvöldið til að pakka njósnagræjunum mínum ofan í handtöskuna og yfirfara kústinn minn, fyrir stóru Njósnaferðina mína. Ég er viss um að þið barasta viljið ekki neitt hafa mig með! Grætur sáran og ákveður að kaupa ekki neitt fallegt í hinum meintu útlöndum fyrir Þarfa og Tigru, bara eitthvað verulega ljótt
Ætlarðu þá að kaupa eitthvað ljótt, Hexia? Ég myndi alveg sætta mig við það svosem.
Íhugar hvað væri illa þegið hjá Þarfagreini. Ákveður að best sé að finna 7000 síðna doðrant um Windows stýrikerfið
Ég er oeðinn svo veikur fyrir raunheimalífi að ég þori ekki að mæta af ótta við að ánetjast raunheimalífinu að fullu.
Þó að það hafi komið fram þá getur vel verið að ég láti sjá minn ásamt elskhuga mínum Glottir eins og fífl
Íhugar hvað væri illa þegið hjá Þarfagreini. Ákveður að best sé að finna 7000 síðna doðrant um Windows stýrikerfið
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ég kem að sjálfsögðu og hesturinn líka. Hann kemst fyrir er það ekki?
Verð ég þarna ? Hef ég komið þangað ?Klórar sér í höfðinu
Mig rámar eitthvað í að hafa séð einhvern taka þyrluna þarna... þannig að já, þú hlýtur að hafa komið þangað.
Það er aldrei að vita nema ég líti inn. Ljómar upp