Þetta anskotans jákvæða helvíti sem við köllum því ömurlega nýaldarlega nafni "segðu eitthvað fallegt um sjálfan þig" fer örlítið í taugarnar á mér. Það vantar yin-ið á móti fokking yang-inu og því hef ég ákveðið að stofna nýjan þráð þar sem þeir, sem eru unaðslega þunglyndir og hafa dálæti af því að velta sér upp úr sjálfsvorkunn, geta lýst göllum sínum á ljóðrænan, vísindalegan eða persónulegan máta. Mér er alveg nákvæmlega sama hvernig þig komið orðum að þessu. En ekki halda samt að ég ætli eitthvað að halda í höndina á ykkur, strjúka bakið og segja "svona, svona góurinn, þú er yndislegur eins og þú ert." Mamma ykkar sér um það.
ég skal byrja:
Ég drekk stundum of mikið þegar ég fer að djamma.
Vjer vitum ekki alveg allt um kóbalt Brestur í óstöðvandi grát.
Ég á það til að vera of mildur við óvini ríkisins. Ég verð að taka mér tak.
ég var vondur við Úlfamanninn og stundum byrja ég ekki setningar á stórum staf og stundum geri ég stafsetningarvillur og stundum segi ég eitthvað ljótt um aðra gestapóa og ég er stundum vondur við nýliða. Legst í þunglyndi yfir eigin óþokkaskap
Ég er ekki alltaf svona vel sköllóttur. Brestur í óstöðvandi grát
Ég er útvaxin á ýmsum stöðum.
Ég nota stundum svona táknraðir eins og þessa :-) og þessa :-( á Gestapó.
Brestur í óstöðvandi grát
Ég er oft aumur inn við beinið
nei þessum þræði ætti að loka strax áður en að hann dregur lífsviljan úr öllum á gestapó.Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ég er óþolinmóð... og alltaf kúkandi!
Ég hef óskaplega gaman af að stríða gula fólkinu.
Oft kemur alveg viðurstyggilega vond lykt þegar ég prumpa!
Ég stofna alltof neikvæða þræði.
Ég hef óskaplega gaman af að stríða gula fólkinu.
Það er bara vegna þess að þú ert græn af öfund. Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Ég er latur.
Ég hef óskaplega gaman af að stríða gula fólkinu.
Það er bara vegna þess að þú ert græn af öfund. Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Ég er græn af því það er fallegur litur. Þú ert appelsínugulur af öfund.
Og svo ég segi eitthvað ljótt um mig: Ég á erfitt með að koma mér að verki.