Vjer, Vladimir Vasilievich Fuckov, forseti Baggalútíu, kóbalt- og hergagnaframleiðsluráðherra og viðskiptaráðherra Baggalútíu, stofnandi NHS og æðsti yfirmaður PRESSECPOL, kunngjörum formlega með innleggi þessu þann áhuga vorn á að kanna áhuga Bagglýtinga á stofnun sjerstakrar stofnunar til sjerhæfðrar meðferðar gegn tiltekinni tegund ofskynjunar, sjer í lagi þeirri sjerkennilegu hugmynd/ofskynjun að sk. 'raunheimar' sjeu í raun og veru til. Um afar stóra stofnun yrði að ræða með fjölmennu starfsliði sjerhæfðra sjerfræðinga en óvissa er enn um hvort fjármagn verði til staðar til að taka við einhverjum sjúklingum.
Vonumst vjer eftir umræðum og/eða tillögum að uppbyggingu þessarar hugsanlegu stofnunar og jafnvel tillögum að starfsfólki Kemur með nokkur tonn af fagurbláum drykk og öðrum veitingum á stofnunarstofnfundinn (þó enn eigi eftir að ákveða hvort hann verði haldinn)
Kemur inn með legubekki, skrifblokkir og krúttleg mjúkdýr á meðferðarstofurnar. Krumpuð og gömul tímarit, óþægilega stóla og mjög lág borð í biðstofurnar. Abstraktmyndir, kaffikönnu og sérmerkta bolla á skrifstofu yfirstjórnar. Hananú.
Mætir á stofnfundinn til að drekka en hefur frekar litlar áhyggju af svokölluðum raunheimaranghugmyndum enda munu þeir sem þær ranghugmyndir hafa á alvarlegu stigi að öllum líkindum hverfa inn í sinn eigin ímyndaða raunheim og festast þar án þess að eiga nokkurn minnsta möguleika á að finna gestpó.
Er þetta þá þráður um stofnun ofskynjunarmeðferðar eða þráður um ofskynjunarmeðferðarstofnun?
Starir þegjandi út í loftið
Ég gæti trúað að afar löng orð séu vel fallin til ofskynjunarmeðferðar án þess að ég fari löngum orðum um orðalengjugagnsemi.
Ég... ég sé... ég sé Jesús! Hann er á fílsbaki! Fíllinn er grænn og heitir Járnreður! Jesús er með sólgleraugu og er að borða þurrkaðar fílasnjáldrur úr poka!
Veltist um á gólfinu með sjáöldur á stærð við körfubolta
Finnur laust herbergi og innréttar það með raflostsmeðferðartólum Hér verður auðvitað eingöngu starfað eftir nýjustu kenningum og viðurkenndum aðferðum. Svipast um eftir öðru herbergi til að hýsa vatnslækningar
Ég hef heyrt því fleygt að vatnsmeðferð skili afbragðsgóðum árangri í baráttunni við þetta illvíga mein.
Ég... ég sé... ég sé Jesús! Hann er á fílsbaki! Fíllinn er grænn og heitir Járnreður! Jesús er með sólgleraugu og er að borða þurrkaðar fílasnjáldrur úr poka!
Veltist um á gólfinu með sjáöldur á stærð við körfubolta
Lætur tvö krúttleg mjúkdýr hjá Furðuveru og pantar stóra sendingu af spennitreyjum. Þetta á eftir að verða meira geðsjúklingahælið. Dæsir mæðulega og lítur inn á milli járnrimlana
Þetta á eftir að verða meira geðsjúklingahælið.
Fer í fortíðarupprifjun
Ætlli vjer hefðum lent hjer er vjer rituðum þessi orð ef það hefði verið búið að stofna þessa stofnun ? Hrökklast afturábak og hrasar við
Skoppar inn móður og másandi í sláturhússlopp og með barna hlustunarpípu
Mig hefur alltaf langað til að prufa að vera læknir.
Þessi stofnun er alger óþarfi. Það er einfaldasta mál í heimi að koma bara af stað einu allsherjar átaki. Átakið myndi einfaldlega fela það í sér að einhver starfsmaður ríkisins myndi heimsækja alla borgara Baggalútíu og skjóta af þeim hnéskeljarnar, þá er óneitanlega erfiðara fyrir fólk að fara úr tölvunni. Ég gæti persónulega séð um að framfylgja þessari áætlun. Hleður haglarann
Þetta er skrítið. Ef það væru skotnar af mér hnéskeljarnar, væru það þá ekki raunheimaskeljar? Þyrfti þá ekki þessi starfsmaður ríkisins að koma heim til mín þar sem ég sit á mínum rétta stað við tölvuna?
Klórar sér í höfðinu
Þetta er þversögn.
Það er örugglega betra að nota eitthvað annað en haglabyssu.
Hvað um leysigeislabyssu?
Nei, þetta er bara eins og í Matrix, ef þú deyrð í Matrix þá deyrðu í alvörunni. Ég held að raunheimar gætu verið einhverskonar Matrix.
Áttu þá aðra haglabyssu?
Er samt ekki alveg sannfærð, minnir endilega að ég hafi séð þessa umræddu bíómynd í raunheimum, sem gætu þá verið matrix og því ekki til í rauninni og þá hefði ég ekki séð þessa mynd...
Það er örugglega betra að nota eitthvað annað en haglabyssu.
Hvað um leysigeislabyssu?
Hvað með leysigeislahaglabyssu?
Nei, þetta er bara eins og í Matrix, ef þú deyrð í Matrix þá deyrðu í alvörunni. Ég held að raunheimar gætu verið einhverskonar Matrix.
Eini munurinn er að raunheimar eru ekki til.
Sko, málið er að ef þér finnst þú hafa upplifað eitthvað í raunheimum (sem eru ekki til, nema þá hugsanlega sem einhverskonar Matrix (þ.e. draumheimar)) þá er það alveg gott og gilt og upplýsingarnar sem þú færð úr þeirri upplifun svona svipað og að fá vitjun í draumi. En það er svo annað mál að oft getur manni dreymt eitthvað algert kjaftæði.
Þetta á eftir að verða meira geðsjúklingahælið.
Fer í fortíðarupprifjun
Ætlli vjer hefðum lent hjer er vjer rituðum þessi orð ef það hefði verið búið að stofna þessa stofnun ? Hrökklast afturábak og hrasar við
Hefur þetta eitthvað að gera með fyrirspurn mína til ritstjórnar, þar sem ég fékk það staðfest að djöfullegt samsæri um að taka mig úr umferð er í gangi?
Hrökklast aftur á bak og hrasar um vínrauðan krókódíl.
Leggst á bekkinn
Ég er langt leiddur í raunheimagrillum. Ég er farinn að telja mér trú um að til sé veröld þar sem súkkulaðigosbrunnar og kandýflosvélar eru til á hverju heimili. og jafnvel til séu sérstakir pokar sem minkar umfang alls farangurs þannig að hægt sé að koma heilli búslóð í eina venjulega ferðatösku. Ég veit að þetta eru órar í mér síðasta ruglið var svo innisskór sem muna eftir manni, hvernig kemst ég út úr þessu ég er farinn að eyða meir og meiri tíma í þessum raunheimum þrátt fyrir að ég sé vitiborin vera og viti vel að raunheimar eru ekki til. Ég þarfnast hjálpar.