Ég get barið saman vísur með betra rími en Bubbi hefur gert á stundum.
Ég er frábær.
Ég reyni oftast að láta iðjuleysi mitt bitna sem minnst á öðrum.
Ég er ómótstæðislega mikið vaxinn
Ég er að baka. Bæði fíkjutertur og jólakökur. Bakaði líka í gær. Tárast af stolti.
Ég er ekki fingralangur maður.
Ég er ekki fingralangur maður.
Það bendir til þess að þú sért ekki úr Nesjunum.
Ég er ekki fingralangur maður.
Það bendir til þess að þú sért ekki úr Nesjunum.
Ekki ér ég úr Nesjunum svo að þar dregurðu rétta ályktun þó svo að þú gefir þér sennilega rangar forsendur. Þetta er nefnilega sagt í bókstaflegri merkingu og geta þeir sem hafa hitt raunheimaleikara minn staðfest að þetta sé satt. Ég er með afar stutta fingur. Sérstaklega á vinstri hendi...
Ræskir sig
Ehemmm...Áfram með þráðinn:
Huxar stíft um eigið ágæti svo að rýkur úr
Ég er góður við öll dýr, hvort sem um er að ræða silfurskottur, ketti, geitunga eða framsóknarmenn.
Ég hef ekki verið fyrir neinum í dag... held ég.
Ég elda alveg ljómandi fína kjötsúpu sem er gott að orna sér við á köldu vetrarkveldi.
Mér er orðið alveg sama. "Fokk it" er hér eftir lífsmottó mitt.