Ég held það sé einróma... Vímus skal það vera... Skál
Já sammála, hann fær atkvæði frá mér.
Á hann þá ekki réttinn?
Þannig séð á hann réttinn ef hann vill, en það má sjá í upphafi þráðarins að Isak hafði það opið að hver sem er gæti lagt fram næsta viðfangsefni ef þannig ber undir.
Í þakklætisskyni býð ég upp á oddhendu.
Á vísnaþræði vel ég þæði
vísnaflæði oddhent hér.
Inn ég læði litlu kvæði
lítð næði hlýst af mér.
Angri veldur vísan geld,
vil ég heldur gaman:
Við þinn eld mér ylja í kveld
undir feldi saman.
Vel ort Regína.
Hér á Vímus væntanlega við oddhendar hringhendur, ódýrari bragarhætti færi hann vart að bjóða upp á.
Íslands vínin eðalfín
þeir ekki sýnast skilja.
Hér í Kína hreint það skín
sem hugnast mínum vilja.