Það skrifar enginn skróp hjá mér!xTxTxT
Ég á ekkert að þurfa að tilkynna mætingu.
Þið eigið bara að sjá að ég er mætt!
Auðvitað sjáum við það Tigra mín! Það getur ekki farið fram hjá neinum að hér hoppar kóbaltblátt tígrisdýr um alla ganga. Gefur Tigru kakó
Ljómar upp og lepur kakó
Nú er ég sjálflýsandi kóbaltblátt tígrisdýr!
Mættur. Byrjar að merkja við alla í kladdanum
Ljómar upp og lepur kakó
Nú er ég sjálflýsandi kóbaltblátt tígrisdýr!
Vladimir! Ég fann vitann!
Þýðir það að ég þarf að hlaupa í hringi í einhverjum turni á klöpp úti við sjó?
Ákveður að slengja fram fimmeyringi dagsins
Þú gætir náttúrulega tekið þetta að þér hálfan daginn en þá værirðu auðvitað hálf-viti.
Hleypur eins og fætur toga út á flugvöll þar sem ný einkaþota bíður og flýgur á ótilgreindan áfangastað til að losna við að fá tígrisdýrabitför í rassinn
Ákveður að vinna allan daginn til að vera heilviti
Skýtur stórt gat á hurðina með haglabyssunni sinni þar sem hurðahúnninn var og sparkar henni síðan upp
Ah.. Hún hérna stóð aðeins á sér.
Rataði loksins inn eftir langa mæðu
Jæja þá má stóla á mig aftur.skráir sig inn