Myrkvast upp
hvar þráðurinn á hvað ertu að hlusta er
hvar þráðurinn á hvað ertu að hlusta er
Hann er hér: http://www.baggalutur.is/gestapo/viewforum.php?f=11&topicdays=0&start=50 rétt fyrir neðan miðju.
Hvernig stendur á því að í nýjasta leiknum hérna, þar sem enginn stafur í nýja orðinu má innihalda staf úr orðinu á undan, sá ég ekki (eftir þónokkra hugsun þó) að orðin:
Snittteinn
og
Apaköttur
Hafa bæði stafinn T.
Og meira að segja nóg af honum! Brestur í óstöðvandi grát
Um síðustu helgi var ég (sem oft áður) að leysa krossgátu. Þar kom fyrir vísbendingin: Höfuðborg Líbanon. (7 stafir).
Síðast þegar ég vissi þá var það Beirút, en það er bara 6 stafir. Ég fann einhvers staðar Beyrouth (8 stafir), veit ekki á hvaða tungumáli það á að vera, því á ensku er það Beirut. Getur það verið að einhverjir heilagjafar sem eru búnir að gefa telji að þetta eigi að vera Beirúth á íslensku?
Þá er það hin vísbendingin, sú sem ég hef ekki ráðið enn Blótar herfilega og rífur hár sitt: Ættflokkur sem talaði indóevrópsku. (5 stafir).
Miðað við að Beirút sé Beirúth þá eru stafirnir í orðinu yfir þennan ættflokk: A _ H _ R. Getið þið sagt mér hvaða ættflokkur það er? (Reynið að líta framhjá því að það eru bara ímyndaðir ættflokkar sem töluðu indó-evrópsku því engar ritaðar heimildir eru um hana, en það sem þekkt er er að ýmsir ættflokkar töluðu ýmis mál af indó-evrópskum stofni).
Índóevrópska var töluð að aríum svarið er því aríar. Beirúth er náttúrurlega svo vitlaust að það ætti að taka bílprófið af höfundi krossgátunar ef þetta reynist tilfellið.
Ef svarið er Aríar, þá þyrfti Beirút að vera Beirútí.
Fellur í yfirlið
Trúðu mér svarið er aríar.
Bendir á nýustu breytinguna í undirskriftinni sinni.
Er svarið þá ekki Artar?
Passar í krossgátuna að þar megi standa arhar
Þarna held ég að krossgátuhöfundi hafi skjöplast með heitið að höfuðborginni og haldi að hún heiti Trípolí. Þá er heitið á ættbálknum Aríar, sem vissulega töluðu indoevrópskt mál. Misskilningurinn um Tripolí gæti átt sér rætur í gömlu landabréfabókinni sem kom fram fyrir 1970 og var í brúki eitthvað fram á 9 áratuginn.
Arhar myndi ganga - sem ætti þá að vera eitthvað undarlegt form af aríar.
Klórar sér í höfðinu
Ég var búin að láta mér detta í hug Aríar, en það gekk ekki upp. Ég fann eitthvað um Aryar (sem gæti náttúrulega verið aríar), en það gengur ekki heldur upp. Mig vantar að vita hvað fáráðurinn sem samdi gátuna telur að sé höfuðborg Líbanon.
nokkuð góð hugmynd hjá Huxa.
Þarna held ég að krossgátuhöfundi hafi skjöplast með heitið að höfuðborginni og haldi að hún heiti Trípolí. Þá er heitið á ættbálknum Aríar, sem vissulega töluðu indoevrópskt mál. Misskilningurinn um Tripolí gæti átt sér rætur í gömlu landabréfabókinni sem kom fram fyrir 1970 og var í brúki eitthvað fram á 9 áratuginn.
Alveg held ég að Huxi hafi hitt naglann á höfuðið með stóru sleggjunni. Fer og athuga.
Jú jú! Það gengur upp.
Ljómar upp
Beirut er höfuðborg Libanon
Já, við vitum það, en höfundur gátunnar grenilega ekki.
Töff lausn hjá Huxa, gangi þér vel krossgata.