Það tilkynnist hjer með opinberlega að fyrir nokkrum mínútum uppgötvaðist alvarlegur galli á uppbyggingu ráðherra- og embættismannakerfis Baggalútíu: Eigi er til nein einkaleyfastofnun. Er og eigi neitt ráðuneyti er umsjón hefur með málaflokki þessum. Er því svo dæmi sje nefnt með öllu ómögulegt að fá einkaleyfi á þeirri merku tímamótauppgötvun að unnt er að losna við speglun af tölvuskjá með því að draga fyrir glugga.
Leggjum vjer því hjer með formlega til að í þræði þessum verði slík stofnun stofnuð, forstjóri skipaður, ákveðið undir hvaða ráðuneyti stofnunin heyrir og einkaleyfi skráð. Einnig þarf að halda bókhald yfir einkaleyfagjöld. Skál ! Undirbýr að sækja um einkaleyfi á þeirri hugmynd að stofna sjerstakan þráð er eingöngu snýst um baggalútísk einkaleyfi
Sækir um einkaleyfi á einkaleyfum
Ég er farinn í frí, ekki halda að þið fáið að koma með! fer í einkaleyfi
Það tilkynnist hjer með opinberlega að umsóknir þessar eru ógildar sökum þess formgalla að einkaleyfastofnun er enn sem komið er ekki til Undirbýr að sækja um einkaleyfi á þeirri hugmynd að geta dæmt umsóknir um einkaleyfi ógildar vegna formgalla.
Ertu með öðrum örðum að segja að ég hafi kanski sótt um í einkaleyfisleysi?
Undirbýr umsókn um að fá einkaleyfi á þeirri merku tímamótauppgötvun að unnt er að losna við speglun af tölvuskjá með því að draga fyrir glugga
Bakkar fullum vörubíl af plútóníum inn, drepur á honum og hendir lyklunum í Vlad
Er þetta ekki formgallinn sam vantaði í umsóknina mína ?Starir þegjandi út í loftið
Ákveður að aðstoða Hvæsa með því er hjer fylgir á eftir
Vjer vekjum hjer með formlega athygli á að von er á mikilvægum einkaleyfaumsóknum en umsóknaóafgreiðanleiki sá er vöntun viðeigandi stofnunar orsakar orsakar hækkun einkaleyfaumsóknarstressstuðuls væntanlegra viðskiptavina hinnar óstofnuðu stofnunar.
Leggjum vjer því formlega til að stofnunin verði stofnuð sem fyrst en þó þarf á undan umsóknum um einkaleyfi að fá umsóknir um forstjórastöðu (eða jafnvel ráðherraembætti) vegna stofnunar stofnunarinnar.
Undirbýr að stofna til umsóknar um forstjórastöðu einkaleyfastofnunar eftir stofnun þeirrar stofnunar
Sendir inn umsókn um sæti í ákvörðunarráði einkaleyfisstofnunar Baggalútíu
Bakkar öðrum eins vörubíl að Vlad og afhendir honum sömuleiðis lyklana
Undirbýr umsókn um einkaleyfi á orðinu "stofn***************" í öllum hugsanlegum myndum og hefur gerð eyðublaða fyrir stofnorðanotkunargjöld
Ég hef ekki tíma til að einkaleyfast, það er nóg að gera í vitavarðarstörfum. Sæfarar hægri vinstri.
Ljómar upp
Ég segi slíkt hið sama. Kálfar hægri vinstri. Ljómar upp
Vjer sækjum um að ef einkaleyfistofnun verði sett á laggirnar veitumst okkur bræðrum einkaleyfi á löggunum
Vjer sækjum um að ef einkaleyfistofnun verði sett á laggirnar veitumst okkur bræðrum einkaleyfi á löggunum
Það er verið að tala um einkaleyfi, ekki veiðileyfi.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið