Mér datt í hug að stofna alvöru getraun með alvöru verðlaunum.
Getraun þessi er fólgin í því að finna Vímus í öðrum af þeim falsmiðlinum sem bornir eru út á hvert heimili. Það eru raunveruleg verðlaun í boði fyrir þann er sigrar.
Brestur í óstöðvandi grát Ég fékk ekki Fréttablaðið í morgunn.
En Blaðið?
Fer og skoðar Blaðið í þriðja sinn.
Ég fæ hvorki Fréttablaðið né blaðið Brestur í óstöðvandi grát
Getur þú ekki nappað blaðinu úr næsta póstkassa?
Er hægt að komast yfir þessa snepla á .pdf formi einhverstaðar? Og vinnur maður líka ef maður finnur kappann þar?
Ég held að ekki sé hægt komast í að lesa Blaðið á netinu en lausnina er að finna þar í formi nokkurskonar felumyndar en þú værir ekki í góðum málum ef þú mundir vinna Jarmi minn.
Nei. En mig langar sjá kappann, það var nú heila málið.
Þú kemur til með að sjá hann á RUV á sjómannadaginn.
Vímus er ljóti kallinn á skjánum, en ekki fallega daman við skrifborðið.
Shrike er með þetta rétt. Að vísu fer Dordingull nær því með sinni ógeðfelldu athugasemd.
Verðlaunin eru að mæta með Vímusi á sérstaka sýningu myndarinnar í Tjarnarbíói næsta mánudag.
Myndin verður sýnd kl 18 en fyrst verður boðið upp á veitingar kl. 16,30.
Myndin verður síðan sýnd á RUV. sunnudaginn 3. júní (Sjómannadag)
Ég sé ekki að hægt komast í að lesa Blaðið á netinu en lausnina er að finna þar í formi nokkurskonar felumyndar en þú værir ekki í góðum málum ef þú mundir vinna Jarmi minn.
Ég sá að hægt er að lesa Blaðið frá www.mbl.is
Jahá en hvað segir þú um verðlaunin, hefur þú áhuga eða getu til að mæta með mér á þessa sýningu?Þarna verða sögumenn myndarinnar og þeir eru ekki síður skrautlegir rugludallar en Vímus.
Jahá, þú segir nokkuð. Jú, áhugann hef ég; og líklega getuna líka.
En þarf maður ekki að hafa migið í saltan sjó til þess?
Drífðu þig bara niður í fjöru og mígðu.
Nei það er ekkert skilyrði. Mér finnst bara óþarfi að nýta sér ekki að geta tekið með sér gest.
Vinkona mín kemst ekki svo mér datt þetta í hug. Ég er viss um að myndin er áhugaverð, einkum fyrir þá sem ekki upplifðu þetta sjálfir. Þetta var hreint út sagt ótrúlegt líf um borð í þessum ,,járnurum"
Þeir voru mannaðir með því sem kallaðist dreggjar þjóðfélagsins en þegar þetta lið drattaðist úr koju og upp á dekk þá varð mér ljóst að hér voru engir aumingjar á ferð.
Sjálfur var ég tældur um borð í Jón Forseta með tveimur flöskum af brennivíni, þá sautján ára gamall.